Tónlist

Partíþokan færist nær

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Svo virðist sem það sé hvergi betra að vera fyrir tónlistargrúskrara en út á landi í sumar. Hver tónleikahátíðin á fætur annarri skemmtir landanum í sumar og sú allra nýjasta er Partíþokan er haldin verður á Seyðisfirði yfir helgina. Þar koma fram Snorri Helgason, PrinsPóló, Mr. Silla, Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar, Ojbarasta og Hugleikur Dagsson.

Hátíðin heitir eftir lagi úr smiðju Svavars Péturs Eysteinssonar en hann hefur gefið það út tvisvar. Fyrst sem samstarfsverkefni sólóverkefni síns Prins Póló og hljómsveitarinnar Skakkamanage sem hann var einnig liðsmaður í. Einhverju síðar var lagið svo gefið út í samstarfi við FM Belfast undir nafninu Prins Belfast. Svavar á rætur að rekja til Seyðisfjarðar því þar bjó hann ásamt fjölskyldu sinni um tíma. Segja má að hliðarsjálf hans, Prins Póló, sé fæddur á Seyðisfirði og er því um eins konar heimkonu að ræða.

Tónleikarnir fara fram í Herðubreið á föstudags- og laugardagskvöld. Helgarpassi kostar 3500 kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×