Njóta afrakstursins án samviskubits 24. febrúar 2012 15:00 myndir/valli
Vilborg Aldís Ragnarsdóttir og Hafdís Heiðarsdóttir stofnuðu hönnunarfyrirtækið Arca árið 2009 eftir að þær hönnuðu kökudisk á fæti sem sló í gegn. Vinkonurnar finna stundum fyrir samviskubiti gagnvart fjölskyldunni þegar álagið er sem mest í rekstrinum en láta það ekki stoppa sig þegar kemur að útrás en nú þegar er hönnun þeirra seld í París, Kaupmannahöfn og London. Hvað varð til þess að þið stofnuðuð fyrirtækið Arca?Vilborg: Við stofnuðum Arca í lok ágúst 2009. Kveikjan að öllu saman var kökudiskur á fæti en hann má taka í sundur og er afhentur í flötum pakkningum. Grunnhugmynd Arca er einmitt sú að varan á að vera notendavæn, stílhrein og fyrirferðarmikil á borði en nett í geymslu.Hafdís: Við höfum alveg frá byrjun haft það markmið að geta lifað af hönnun okkar og eitt af því er að koma vörunni á erlendan markað sem við erum byrjaðar að vinna í. Nú þegar er varan okkar seld í Kaupmannahöfn, París og London. Þessir söluaðilar fundu okkur á internetinu og höfðu samband við okkur á Facebook. Frakkar eru sjúkir í jökulinn og kertastjakana. Í Danmörku er eftirspurn eftir vöru úr áli frá okkur og í Bretlandi seljum við mikið af smávörunni.Hvernig gengur samstarfið?Hafdís: Ég er það heppin að vera að vinna með bestu vinkonu minni og samstarfið gengur í alla staði mjög vel. Við bætum hvor aðra upp og þegar við tvær komum saman þá er fátt sem stoppar okkur.Vilborg: Við Hafdís erum það heppnar að eiga skap saman ásamt því að vera bestu vinkonur sem auðveldar vinnu okkar töluvert en gaman er að nefna það að langflestar hugmyndir hafa litið dagsins ljós yfir kaffibolla og hlátrasköllum án nokkurrar fyrirhafnar. Sameiginleg ástríða okkar beggja er klárlega að Arca nái þeim hæðum erlendis sem við vonumst til. Við höfum allt frá fyrsta degi litið á þetta sem tækifæri til að skapa okkur atvinnu og tekjulind.Hvernig gengur að vera framakonur með stóra fjölskyldu?Vilborg: Það er heilmikil vinna að reka fyrirtæki og sjá um heimili samhliða því. Ég bý samt að reynslu foreldra minna en þau hafa verið í rekstri frá því ég man eftir mér. Þegar mikið er um að vera og lítill tími sem gefst fyrir strákana mína finn ég best hve mikilvægt er að skipuleggja mig vel. Án þess væri ég ekki þar sem ég er í dag, ég fer aldrei út án þess að hafa með mér dagbók og paratabs.Hafdís: Það gengur vel ef allir hjálpast að. Birta, elsta dóttir mín, er ofsalega dugleg að hjálpa mér með að passa litlu systkini sín. Ég gæti þetta ekki án hennar en óneitanlega er oft erfitt að samræma þetta allt saman, sérstaklega á álagstímum eins og t.d. um jólin. Þá erum við að vinna frá morgni til kvölds og ég hef lítinn tíma í hluti eins og að elda kvöldmat og læra með krökkunum. Við borðum t.d. skyndibita fyrir allt árið í desember. En við reynum alltaf a.m.k. að hafa frí á sunnudögum og þar reyni ég að troða vikudagskrá með fjölskyldunni á einn dag.Finnið þið fyrir samviskubiti gagnvart fjölskyldunni þegar álagið tengt rekstrinum er sem mest?Vilborg: Vissulega hef ég samviskubit gagnvart strákunum þegar álagið er mikið. Ég held að fjörið sé nú bara rétt að byrja því vinnan hér heima er barnaleikur einn miðað við það sem tekur við erlendis. Þar eru hlutirnir ekki eins fljótir að gerast eins og hér. Allt ferlið tekur lengri tíma, meiri kostnaður og enginn tími fyrir mistök.Hafdís: Ég held að maður búi sér oft til samviskubitið sjálfur, og ég er engin undantekning. Ég fæ samviskubit yfir ótrúlegustu smáhlutum og ég er til dæmis langt fram í janúar að vinna mig niður í samviskubitinu frá desembermánuði.Vilborg: Við göntumst stundum með það að við ættum að njóta þess núna því óvíst er að við eigum eftir að hafa svo mikinn tíma að ári ef allt gengur samkvæmt áætlun. En fjölskyldan var nú meginástæða þess að við stofnuðum Arca. Við þurftum báðar að búa okkur til tekjulind. Tilgangurinn helgar svo meðalið. Í dag horfum við björtum augum til framtíðar með það að leiðarljósi að ef allt gengur upp þá sættum við okkur við smá samviskubit en á móti kemur öryggisnetið sem við byggjum upp með afkomu af rekstri sem gengur vel og gerir okkur kleift að leyfa fjölskyldunni að njóta á ýmsa vegu. Ég held að við konur séum allt of móttækilegar fyrir tilhugsuninni um samviskubit gagnvart hinu og þessu fremur en karlmenn almennt. Af hverju ættum við ekki að feta í fótspor þeirra og líða jafn vel fyrir vikið þegar vinnutími eykst og tekjur aukast? Við erum nú búnar að berjast fyrir kvenréttindum í mörg ár – njótum afrakstursins í guðanna bænum.Arca design á Facebook.
Mest lesið Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lífið Með Banksy í stofunni heima Menning Hágrét þegar hún sagði mömmu að hún tæki ekki við búðinni Lífið Hver er Thomas Skinner? Tryllingur, framhjáhald og myndarlegar máltíðir Lífið Hljóp undir fölsku nafni Lífið Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Lífið Fluttur á spítala eftir mislukkað áhættuatriði Bíó og sjónvarp Með sálfræðigráðu á leið í skartgripahönnun í Róm Tíska og hönnun Lítill rappari á leiðinni Lífið „Það jafnast enginn á við þig“ Lífið Fleiri fréttir Hver er Thomas Skinner? Tryllingur, framhjáhald og myndarlegar máltíðir Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Enginn að rífast í partýi á Prikinu Hljóp undir fölsku nafni Úrslitaspurningin var um húðflúr aðalleikarans í Breaking Bad „Það jafnast enginn á við þig“ Hágrét þegar hún sagði mömmu að hún tæki ekki við búðinni Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig Lítill rappari á leiðinni Ljúffengar uppskriftir undir tuttugu mínútum Fátt skemmtilegra en að klappa Einari á afturendann á almannafæri Haustlestur: Gotneskur drungi, magnaður sannleikur og boltarnir hans Trump Í fullkomnu starfi sem listrænn skipulagspési Krakkatían: Lína Langsokkur, Vegbúi og Afríka Hamingjustund þjóðarinnar í beinni útsendingu Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Bakaríið í beinni útsendingu „Vökvagjöfin er ekki bara eitthvað sem ég trúi á“ Fréttatía vikunnar: Heimsmet, fúkyrði og brjóstahaldari Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Ágústa Eva slær sér upp með KR-ingi Fagurfræði og ævintýralegt gróðurhús í Fossvogi Innviðaráðherra á von á barni Búið spil hjá Burton og Bellucci Hlaupadrottning eignaðist dreng með hraði Bjó til útibíó við heita pottinn og með gerviblóm í garðhúsinu Danir með en keppnin sögð í fordæmalausri krísu Emilíana Torrini fann ástina Heitustu naglatrendin fyrir haustið Rooney getur ekki farið til Bretlands af ótta við að verða handtekin Sjá meira