Lífið

Barn Beyoncé fæddist í gær

elly@365.is skrifar
myndir/cover media
Söngkonan Beyoncé Knowles, 30 ára, og rapparinn Jay-Z, 42 ára, eignuðust stúlku í gærkvöldi. Stúlkan hefur verið nefnd Blue Ivy Carter.

Jay-Z, sem heitir réttu nafni Shawn Carter, var viðstaddur fæðingu frumburðarins á Lenox Hill sjúkrahúsinu í New York.

Söngkonan var bókuð á spítalann undir nafninu Ingrid Jackson. Þá leigðu hjónin heila hæð spítalans fyrir fúlgu fjár en öryggisgæslan var hert þegar sögusagnir fóru af stað um að Beyoncé væri mætt á spítalann á föstudag í fylgd móður sinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.