Gylfi einn dýrasti leikmaður Íslands frá upphafi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. júlí 2012 12:55 Gylfi Þór Sigurðsson í baráttu við Luis Suarez. Nordic Photos / Getty Images
Óhætt er að fullyrða að Gylfi Þór Sigurðsson sé orðinn einn dýrasti knattspyrnumaður Íslandssögunnar en hann gekk í dag í raðir Tottenham á Englandi. Þegar Gylfi fór til Hoffenheim árið 2010 var kaupverðið talið vera um sjö milljónir punda. Þá var hann sagður næstdýrasti leikmaður Íslands frá upphafi, á eftir Eiði Smára Guðjohnsen. Kaupverð Gylfa nú fæst ekki uppgefið en samkvæmt enskum fjölmiðlum er það um átta milljónir punda. Eiður Smári Guðjohnsen fór til Barcelona árið 2006 fyrir óuppgefna upphæð en spænskir fjölmiðlar sögðu þá hana nema um tólf milljónum evra. Aðrir fjölmiðlar sögðu þá upphæð lægri. En þar sem kaupverð þeirra Gylfa og Eiðs voru ekki staðfest með opinberum hætti er erfitt að fullyrða nákvæmar tölur hvað þetta varðar. Ljóst er að Gylfi og Eiður Smári eru í nokkrum sérflokki hvað þetta varðar, en aðrir íslenskir leikmenn hafa áður verið seldar fyrir háar upphæðir - svo sem Hermann Hreiðarsson og fleiri. Miðað við gengisþróun íslensku krónunnar undanfarin ár má gera ráð fyrir því að upphæðin sem er nú greidd fyrir Gylfa sé sú hæsta sem hafi verið greidd fyrir íslenskan leikmann í krónum talið.
Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Landsleikirnir við Svía ekki í Laugardalshöll Handbolti Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa Sport „Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Körfubolti Sara tekur ekki þátt í Open og missir því af heimsleikunum Sport „Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfubolti Elín Klara fékk tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna Handbolti Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Formúla 1 Fá bætur eftir að hafa villst vegna forystubílsins Sport Fleiri fréttir „Aðeins eitt lið sem reyndi að spila fótbolta í dag“ Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Liverpool setti afar svekkjandi met Gullit er hættur að horfa á fótbolta Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Gakpo leit upp til Alberts „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ Sjá meira