Sport

Matthildur náði sínu besta í 200 m hlaupi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir komst ekki áfram í úrslit í 200 m hlaupi kvenna en undanrásirnar fóru fram á Ólympíuleikvanginum í London í morgun.

Matthildur Ylfa hljóp á 32,16 sekúndum og bætti sinn besta tíma um meira en eina og hálfa sekúndu sem er frábær árangur. Hún kom í mark á nýju Íslandsmeti.

Hún hafnaði í sjötta sæti í sínum riðli og þrettánda sæti alls í keppninni af fimmtán keppendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×