Bæjarábyrgð fyrir verktaka ólögleg segir í lögfræðiáliti 15. febrúar 2011 13:45 Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sést hér með Helgafell í baksýn. Hann er ósammála niðurstöðu lögfræðiálits sem unnið var fyrir bæjarráð um að viðskiptin við verktaka í Helgafellslandi hafi brotið í bága við lög.Fréttablaðið/GVA
Mosfellsbær braut sveitarstjórnarlög með því að taka við víxlum sem greiðslu fyrir skuld verktaka og með því að gangast í sjálfskuldarábyrgð fyrir verktakann. Þetta segir í lögfræðiáliti sem unnið var fyrir bæjarráð. Mosfellsbær gerði árið 2006 samstarfssamning við forvera Helgafellsbygginga ehf. um uppbyggingu í Helgafellslandi. Verktakinn átti að greiða bænum 700 þúsund krónur fyrir hverja byggða íbúð og átti að lágmarki að borga fyrir 1.020 íbúðir. Heildargreiðslan átti því að verða minnst 714 milljóir króna. Í júlí 2008 höfðu 416 íbúðir verið seldar og bærinn fengið 130 milljónir króna en 200 milljónir voru ógreiddar. Þá var samið um að Helgafellsbyggingar borguðu eftirstöðvarnar með víxli. Gaf félagið síðan út 239 milljóna króna víxil til uppgjörs á 198 milljóna króna skuld. Í september 2009 var samkomulagið framlengt með því að bærinn gekk í sjálfskuldarábyrgð fyrir 246 milljóna höfuðstóli láns Helgafellsbygginga hjá Landsbankanum. Fulltrúi minnhluta Íbúahreyfingarinnar í bæjarstjórn, Jón Jósef Bjarnason, gagnrýndi þessi vinnubrögð. Bæjarráðið fékk Lex til að meta lögmæti gjörninganna. Telur lögmannsstofan að í báðum tilvikum hafi 6. málsgrein sveitarstjórnarlaga verið brotin. „Samkvæmt ákvæðinu getur sveitarfélag annars vegar ábyrgst lán til stofnana og fyrirtækja sem er að hálfu eða meirihluta í eigu sveitarfélagsins sjálfs. Hins vegar getur sveitarfélag veitt einfalda ábyrgð vegna lánveitinga til framkvæmda á vegum félaga sem sveitarfélagið á og rekur í samvinnu við önnur sveitarfélög eða aðra opinbera aðila til að veita lögbundna þjónustu,“ segir í áliti Lex. Þá eigi 7. grein laganna ekki við því gerningarnir falli ekki undir daglegan rekstur. Slík ábyrgðarskuldbinding, sem stofnað sé til í andstöðu við lög, sé ógild. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri er ósammála því að ekki sé um „daglegan rekstur“ að ræða. „Það sjónarmið kemur á óvart enda var full samstaða um það í bæjarráði og bæjarstjórn á sínum tíma að afgreiða málið með þessum hætti,“ segir bæjarstjórinn sem kveður ekki munu reyna á ábyrgð bæjarins fyrr en næsta haust þegar viðskiptabréfið verður á gjalddaga. „Mosfellsbær hefur trygg veð fyrir sinni framsalsábyrgð, ef svo ólíklega vildi til að ábyrgðin félli á bæinn. Hins vegar væri æskilegt að skoða almennt í framhaldinu hvaða áhrif þetta hefur á aðferðir sveitarfélaga við skuldainnheimtu, ef rétt reynist að slíkur gjörningur flokkist ekki undir daglegan rekstur, því það er ekki einsdæmi í Mosfellsbæ að sveitarfélag hafi framselt viðskiptabréf til að breyta því í handbært fé eins og í þessu tilviki,“ segir bæjarstjórinn. Veðin segir Haraldur vera í byggingarrétti á fjölbýlishúsalóð og í 300 fermetra einbýlishúsi. gar@frettabladid.is
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Fleiri fréttir Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Sjá meira