Spilar með Hjálmum í Hollandi 23. desember 2011 10:45 Söngvarinn og básúnuleikarinn Valdimar spilar með Hjálmum á Eurosonic.fréttablaðið/vilhelm
Valdimar Guðmundsson, söngvari hljómsveitarinnar Valdimar, spilar með Hjálmum á bransahátíðinni Eurosonic sem verður haldin í Hollandi 11. til 13. janúar. „Ég ætla að spila með þeim á básúnu og syngja með þeim bakraddir því Sammi [Samúel J. Samúelsson] kemst ekki í þetta skipti,“ segir Valdimar. Þetta verður í fyrsta sinn sem hann spilar með Hjálmum og leggst það vel í hann. „Það verður gaman að spila á Eurosonic. Það hefði verið skemmtilegt að troða Valdimar þarna inn líka en kannski á næsta ári. Þá tek ég kannski diska með og dreifi þeim út um allt.“ Valdimar ætlar að fara til Hollands á undan Hjálmamönnum til að hitta gítarleikarann Ásgeir sem er þar í tónlistarnámi. „Við munum örugglega semja lög saman. Þetta byrjaði allt þannig, ég og hann að semja lög,“ segir hann og vonast til að hljómsveitin taki upp nýja plötu í maí á næsta ári. Valdimar var nýlega tilnefndur sem söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, auk þess sem lagið Yfirgefinn fékk tilnefningu, enda var það mjög vinsælt á árinu. „Það er gaman að fá þessar tilnefningar. Í fyrra fengum við tilnefningu sem bjartasta vonin og maður hafði kannski vonast til að fá fleiri tilnefningar en platan var ekki búin að vekja athygli þá. En það er rosa hrós að vera tilnefndur núna og gaman að vera í frábærum hópi söngvara.“ Hljómsveitin Valdimar spilar á Þorláksmessutónleikum í kvöld á Nasa ásamt Moses Hightower og Ojba Rasta!. Það verður rosalega gaman,“ segir söngvarinn og lofar skemmtilegum tónleikum. - fb
Mest lesið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning Saga jarðaði alla við borðið Lífið Fleiri fréttir Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Sjá meira