Íslenskt viðtal slær í gegn 22. desember 2011 09:45 Prometheus er beðið með mikilli eftirvæntingu en þar snýr leikstjórinn Ridley Scott aftur á slóðir vísindaskáldskapar.
Viðtal Erlings Grétars Einarssonar við Ridley Scott hefur farið eins og eldur í sinu um kvikmyndaheiminn eftir að það birtist á kvikmyndavefsíðu hans, filmophilia.com. Erlingur var meðal blaðamanna á blaðamannafundi Scotts á 101 Hótel skömmu áður en tökur á geimverumyndinni Prometheus hófust hér á landi. Vefsíðurnar Empireonline.com og contactmusic.com eru meðal þeirra sem hafa vitnað í viðtal Erlings, sem sjálfur er forfallinn Alien-aðdáandi. Aðalfréttin, að mati erlendu miðlanna, er sú að geimveruskrímslið Xenomorph verði ekki í myndinni. Eins og komið hefur fram er Prometheus einhvers konar forleikur að Alien-myndaflokknum fræga og aðdáendur þeirra mynda hoppuðu hæð sína af kæti þegar fréttist af því að Scott væri snúinn aftur á þær slóðir. Þeir vonuðust jafnvel til að fá að sjá Xenomorph í þrívídd. En þeim verður ekki að ósk sinni. „Xenomorph er kominn í Disney-garðinn í Orlando, ég veit ekki hvernig hann endaði þar en hann er sem sagt í Disney-garðinum.“ Tökurnar á Prometheus hér á landi voru gríðarlega umfangsmiklar, en þær fóru að mestu leyti fram við rætur Heklu og svo Dettifoss. Fyrsta stiklan kom á netið í gær og fékk afbragðs viðtökur en með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Noomi Rapace, Michael Fassbender og Charlize Theron. Myndin verður frumsýnd í júní á næsta ári. - fgg
Mest lesið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Laufey á landinu Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira