Kemur heim til að halda partí 22. desember 2011 14:00 Jón Atli kemur heim frá Kaupmannahöfn til að skemmta landsmönnum yfir hátíðarnar. Fréttablaðið/gva
Jón Atli Helgason tónlistarmaður býður sjálfan sig velkominn til Íslands með veislu á Austri í kvöld. Hann lætur vel af dvöl sinni í Kaupmannahöfn. „Ég elska Kaupmannahöfn og það er snilld að vera á meginlandinu,“ segir Jón Atli Helgason tónlistarmaður, sem er nýkominn til landsins í jólafrí. Þrátt fyrir að vera á Íslandi í stuttu stoppi yfir hátíðirnar ætlar Jón Atli ekki að slá slöku við og skipuleggur ýmis partí víðs vegar um bæinn. „Ég kem heim til að halda partí fyrir landann og sjá til þess að allir skemmti sér yfir hátíðarnar,“ segir Jón Atli, en í kvöld býður hann vinum, vandamönnum og áhugasömum á Austur þar sem hann ætlar að þeyta skífum. „Ég sýni nokkra vel valda takta ef það er stemming fyrir því. Þetta er eins konar velkominn-heim-partí fyrir sjálfan mig.“ Jón Atli hefur verið búsettur í Danmörku í tæplega eitt ár þar sem hann er iðinn við kolann að spila á helstu skemmtistöðum landsins en hann er einnig í hljómsveitinni Human Woman ásamt Gísla Galdri Þorgeirssyni. Dúettinn sameinast á næsta ári þegar Gísli flyst búferlum til Danmerkur og staðfestir Jón Atli að árið 2012 verði ár Human Woman. Fyrsta smáskífa sveitarinnar kemur út í lok janúar og plata væntanleg í vor en Human Woman er á mála hjá HFN Music í Hamburg. „Það er snilld að fá Gísla út og við getum unnið í tónlistinni saman og fylgt plötunni eftir hér. Svo er auðvelt að ferðast út um alla Evrópu frá Kaupmannahöfn.“ Jón Atli er einnig að skipuleggja áramótapartí ásamt Margeiri Ingólfssyni og Stephan Stephensen. Jón Jónsson leggur undir sig Esju á gamlárskvöld þar sem Human Woman ætlar að troða upp í síðasta sinn fyrir útrás. „Það hefur skapast hefð fyrir áramótapartýum okkar og þetta verður eintóm gleði í ár með sveitinni Too Young to Love frá New York, Högna Egils og okkur strákunum,“ segir Jón Atli sem heldur svo til Taílands í janúar ásamt foreldrum sínum og síðan beint í árlega skíðaferð í Ölpunum ásamt félögum sínum í febrúar. „Ef árið endar eins og það byrjar hef ég mjög góða tilfinningu fyrir 2012.“alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Fleiri fréttir Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Sjá meira