Prjónaði hálfan sokk 22. desember 2011 17:00 Dóra í slá sem hún hannaði og prjónaði sjálf. Myndir/Jón Lindsay
Dóra Stephensen er hjúkrunarfræðingur í ljósmóðurnámi. Hún prjónaði sína fyrstu lopapeysu sumarið 2010 og hefur ekki lagt frá sér prjónana síðan. Nú semur hún sínar eigin prjónauppskriftir og birtir á facebook-síðunni Knitbook sem hún setti upp fyrir tæpu ári. „Ég er komin með nokkrar uppskriftir þarna inn. Sláin Reykjavík er ný en ég byrjaði á henni í haust," segir Dóra en hún bjó til uppskriftina frá grunni. „Ég prjóna hana úr léttlopa en ég nota íslenska lopann í allt sem ég prjóna. Ég hef reynt að fara aðrar leiðir en að prjóna hefðbundnar lopapeysur og hef gert aðeins af barnafötum, en aðallega kvenfötum," segir Dóra. „Oft fæ ég hugmyndir út frá einhverri flík sem er kannski ekki einu sinni prjónaflík, svo vindur hún upp á sig og útkoman verður allt öðruvísi." Dóra segist vera orðin forfallinn prjónafíkill þó að prjónaferillinn sé ekki langur í árum talið. Hún lærði að prjóna sem krakki en þá hafi frammistaðan ekki lofað miklu. „Ég prjónaði kannski hálfan sokk í skóla," segir hún hlæjandi.„Ég fór reyndar á prjónanámskeið fyrir átta árum en hætti alveg að prjóna þegar ég fór í hjúkrunarnámið. Eftir að ég prjónaði svo fyrstu lopapeysuna í fyrrasumar hafa prjónarnir ekki stoppað og ég er alls ekki hætt." heida@frettabladid.is
Mest lesið Óðinn Svan hættur hjá Rúv: „Maður getur ekki verið atvinnulaus lengi“ Lífið Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Lífið Mari Jaersk tilkynnti kynið úti í náttúrunni Lífið Kann sjö tungumál, með fimm háskólagráður og kennir dönsku Lífið Bridgespaði seldi í Köldulind á 237 milljónir Lífið Elísa og Rasmus gengu í það heilaga Lífið Fáum loks að feta í fótspor Johns Wick Leikjavísir Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Tónlist Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Fleiri fréttir Óðinn Svan hættur hjá Rúv: „Maður getur ekki verið atvinnulaus lengi“ Mari Jaersk tilkynnti kynið úti í náttúrunni Elísa og Rasmus gengu í það heilaga Bridgespaði seldi í Köldulind á 237 milljónir Kann sjö tungumál, með fimm háskólagráður og kennir dönsku Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Minnast Van Der Beek: „Hans verður saknað að eilífu“ „Erum bara vinir“ „Rétt „outfit“ getur bjargað deginum“ Örláti tannálfurinn Zayn aldrei ástfanginn af Gigi Pósthólfið fylltist eftir að hún auglýsti eftir kærasta í Edduverðlaunaræðunni Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Söfnun til handa fjölskyldu van der Beek fer fram úr björtustu vonum Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Bud Cort látinn eftir langvinn veikindi Margrét, Elín, Kristín og Sigrún auk Ævars Þórs fá bókmenntaverðlaun James Van Der Beek látinn Unaðsleg stemming á gotneskri forsýningu Hefur staðið eftir marin eftir mörg hundruð handabönd Mynduðu blátt P og minntust Patreks Freys Trommari The Pogues er látinn Alexandra Helga lokar Míu Vala Matt selur á Ásvallagötunni „Ég sé að hann er löngu farinn“ Frestar tónleikum heilsunnar vegna Britney selur réttinn að tónlist sinni fyrir milljarða Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Yfirlýst lesbía Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Sjá meira