Nýtt vefrit um sviðslistir hefur göngu sína 21. desember 2011 13:00 sáttur Leifur Þór Þorvaldsson er ánægður með viðtökurnar sem vefritið hefur fengið á fyrstu dögunum.fréttablaðið/gva „
Við finnum fyrir miklum áhuga á þessu,“ segir Leifur Þór Þorvaldsson, meðlimur ritstjórnar nýs vefrits, Reykvélarinnar, sem hóf göngu sína á dögunum, en það er helgað umræðu um íslenska sviðslist. Ritstjórnin samanstendur af útskrifuðum nemum úr leiklistarfræði og -framkvæmd við Listaháskóla Íslands sem vildu leggja sitt af mörkum til faglegrar og frjálsar umræðu um allt sem tengist sviðslistum á Íslandi. „Það hefur orðið mikil nýliðun í leiklistargeiranum á Íslandi undanfarið, en okkur fannst eins og umræðan hefði ekki alveg fylgt þeirri þróun. Okkur fannst svona vefrit vera tilvalinn vettvangur til að koma af stað umræðu sem á erindi og tengist því sem við veltum fyrir okkur um sviðslistir.“ Síðan hefur farið vel af stað og að sögn Leifs fær hún síaukinn fjölda heimsókna á dag. Öllum er frjálst að senda inn greinar og bréf til ritstjórnar sem sér um að birta efni á vefnum, og hugleiðingar frá leikstjórum og aðstandendum sýninga verður einnig aðgengilegt. Þannig vonast aðstandendur Reykvélarinnar til að tengja umræðuna sem mest út í þjóðfélagið. „Stefnan okkar er að auka fjölbreytileikann í íslensku leikhúslífi. Þennan umræðuvettvang um almennar pælingar og bollaleggingar hefur vantað.“ Leifur segir að oft langi fólk að spjalla um og velta fyrir sér verki sem það hefur séð, í stað þess að reynslunni ljúki um leið og sýningin er búin. „Það er nefnilega þannig með leiklistina að um leið og sýningum lýkur eru þær búnar bara að eilífu, öfugt við kvikmyndir sem eru alltaf til. Þá er einmitt gott fyrir leiklistarsöguna í framtíðinni að hafa eitthvað skrásett. Það eru svona ýmsar hliðar á þessu sem síðunni er ætlað að tækla.“ - bb
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira