Wahlberg hrósar Baltasar 20. desember 2011 11:00
Contraband, Hollywood-mynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd í næsta mánuði. Aðalleikarinn Mark Wahlberg hrósar leikstjóranum fyrir vinnu sína. Hollywood-stjarnan Mark Wahlberg fer fögrum orðum um íslenska leikstjórann Baltasar Kormák í viðtali sem birtist á vefsíðunni flicksandbits.com í gær. Tilefnið er kvikmyndin Contraband en allur leikarahópurinn var staddur í New York um helgina þar sem hann sinnti blaðaviðtölum vegna myndarinnar sem verður frumsýnd um miðjan næsta mánuð. „Hann var frábær og tók hlutina engum vettlingatökum," segir Wahlberg þegar hann er inntur eftir samstarfinu við Baltasar. „Ég held að hann hafi aldrei gert svona dýra mynd eins og Contraband en hann nálgaðist efnið á sama hátt," heldur Wahlberg áfram og lýsir því síðan hversu orkumikill íslenski leikstjórinn hafi verið á tökustað. „Hann sat ekkert inni í hjólhýsinu sínu með tærnar upp í loft heldur var á þönum nánast allan tímann að sýna mér hvernig ég ætti að klifra í þessu eða hinu atriðinu," segir Wahlberg og bætir því við að hann kunni vel að meta slíkan leikstjórastíl.Contraband.„Hann hafði yfirsýn yfir allt og kunni virkilega að stýra leikurum. Hann hafði auðvitað leikið í upprunalegu myndinni og þekkti því söguna eins og lófann á sér." Wahlberg var það ánægður með Baltasar að þeir tveir hafa ákveðið að gera aðra mynd saman, 2 Guns, sem verður byggð á myndasögu. Viðræður við annan stórleikara standa yfir um þessar mundir en hver það er kemur væntanlega í ljós eftir áramót. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira