Ólafur eldar kalkún á Englandi 19. desember 2011 15:00 Ólafur Darri hefur fengið lofsamlega dóma fyrir leik sinn í Hróa hattar-sýningu Royal Shakespeare-leikhússins. Hann verður á Englandi yfir jólin með fjölskyldunni. „
Ég sé ekki alveg mig, konuna og litlu borða heilan kalkún. Samt, maður veit aldrei, dóttirin virðist hafa erft matarlyst föðurins,“ segir Ólafur Darri Ólafsson. Leikarinn hefur fengið lofsamlega dóma fyrir þátt sinn í uppfærslu Royal Shakespeare-leikhússins á Hróa hetti og mun halda upp á jólin með fjölskyldunni í London, enda að sýna átta sýningar yfir jólahátíðina sjálfa. Ólafur viðurkennir að þetta takið eilítið á, það braki í kroppnum og röddinni fram yfir hádegi á hverjum degi. Ólafur kvartar hins vegar ekki því leikhúsið virðist hafa yfir töluverðum fjármunum að ráða; raddþjálfarar, sjúkraþjálfarar, nuddarar og hreyfiþjálfarar eru á launum hjá því allt árið til að fylgjast með leikurum og hjálpa þeim í vinnunni. „Mér er því farið að líða svolítið eins og knattspyrnumanni eða veðhlaupahesti vegna þjónustunnar.“ Ólafur hefur verið á Englandi síðan í lok september, fyrst í London en svo í Stratford þar sem leikhúsið er staðsett. Til að byrja með var sýningin hálfgerð Íslendinganýlenda; Gísli Örn Garðarsson var leikstjóri, Högni Egilsson sá um tónlistina, Selma Björnsdóttir var aðstoðarleikstjóri og Börkur Jónsson hannaði leikmyndina. „Við buðum samstarfsfólki okkar upp á íslenska matarveislu. Ég þurfti aðeins að skreppa til Íslands vegna Djúpsins og kom heim, klyfjaður af brennivíni og hákarli. Ég var stoltur af meðleikurum mínum þegar þeir kyngdu hverjum hákarlsbitanum á eftir öðrum.“- fgg
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira