Selur barnaföt sín í Field‘s 19. desember 2011 16:00 Söndru Berndsen gengur vel úti í Kaupmannahöfn.
Sandra Berndsen hannar barnaföt undir merkinu Oktober. Hún hefur vakið athygli í Danmörku og hafa föt hennar verið tekin til sölu í stærstu verslunarmiðstöð landsins. „Það verður spennandi að sjá hvað gerist,“ segir Sandra Berndsen, ungur fatahönnuður búsettur í Kaupmannahöfn. Ný barnafatalína hennar hefur verið tekin til sölu í stærstu verslunarmiðstöð Danmerkur, Field‘s. Búðin sem selur fötin heitir Field‘s Designstore og er orðin vel þekkt ytra fyrir að velja hönnun efnilegra fatahönnuða til sölu í búðinni. Sandra útskrifaðist úr Københavns Mode- og Designskole árið 2008 og hóf stuttu síðar að hanna undir merki sínu Oktober. Henni bauðst ásamt nokkrum ungum hönnuðum að taka þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn í fyrra og í kjölfarið kom hún hönnun sinni, aðallega kvenmannsfötum, í sölu í nokkrum litlum hönnunarbúðum í Kaupmannahöfn. Sandra segir það allt annað mál að vera komin inn í Field’s. „Þetta er mjög gott tækifæri. Það eru rosalega margar litlar búðir í hverfunum hérna í Kaupmannahöfn, en að komast inn í Field‘s er eiginlega draumurinn. Þar er allt fólkið og maður er í kringum hinar stóru búðirnar og fær allt aðra athygli.“ Hún segir að margt ólíkt með því að koma sér á framfæri á Íslandi og í Danmörku fyrir ungan fatahönnuð. „Markaðurinn hér er ofboðslega erfiður. H&M og fleiri búðir þar sem hægt er að kaupa ódýr föt gera okkur líka erfiðara fyrir. Heima á Íslandi er fólk miklu meðvitaðra um hönnun og meira fyrir hana. Ég held að það sé aðeins auðveldara að vekja athygli á sér þar.“ Tækifæri eins og þetta býðst ekki án fyrirhafnar að sögn Söndru, sem segir mikla vinnu fólgna í því að koma sér áfram. „Maður þarf stöðugt að vera vakandi fyrir öllum tækifærum sem gætu boðist, og hafa frumkvæði sjálfur líka. Þetta er erfitt en sem betur fer er þetta líka rosalega skemmtilegt.“bergthora@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira