Kemur korteri fyrir jól 12. desember 2011 13:00 Óttar Guðnason er að vinna við kvikmyndina The Numbers Station sem er að mestu leyti tekin upp á Nató-hervelli. Kvikmyndin skartar John Cusack og Malin Akerman í aðalhlutverkum.
Kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason er um þessar mundir við störf í Suffolk á Englandi en hann stjórnar kvikmyndatökunum á kvikmyndinni The Numbers Station sem skartar John Cusack í aðalhlutverki. Myndin er tryllir í anda Bourne-kvikmyndanna. „Flestir tökustaðirnir eru á gömlum Nato-hervelli sem búið er að breyta í neðanjarðarbyrgi,“ segir Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður. Nýjasta verkefni hans er kvikmyndin The Numbers Station eftir danska leikstjórann Kasper Barfoed. Myndin skartar John Cusack og Malin Akerman í aðalhlutverkum en Cusack hefur um árabil verið einn vinsælasti leikari Hollywood. Akerman hefur smám saman verið að skríða upp á stjörnuhimininn, lék meðal annars á móti Ben Stiller í gamanmyndinni The Heartbreak Kid. Óttar er búinn að vera í tvo mánuði á Englandi og tökur hafa gengið mjög vel, eru rúmlega hálfnaðar. „Við erum á áætlun og það er stefnt að því að klára 22. desember. Ég kem því heim korteri fyrir jól, á pantað flug klukkan 13 frá Heathrow. Ætli maður endi ekki bara í jólakettinum í ár.“ Óttar segir verkefnið hafa komið í kjölfarið á kvikmynd Baltasars Kormáks, Inhale, sem Barfoed sá og hreifst af. „Þetta er sæmilega stór mynd í sniðum, framleiðslukostnaðurinn er vel á annan milljarð,“ segir Óttar en það eru bræðurnir Sean og Bryan Furst sem framleiða hana. „Þetta eru sömu aðilar og eiga endurgerðarréttinn að Mýrinni eftir Balta,“ útskýrir Óttar en einvalalið kvikmyndagerðarmanna kemur að gerð hennar. „Sá sem stjórnar áhættuatriðunum er Greg Powell og er almennt talinn vera sá besti í sínu fagi og tæknibrelluliðið kemur allt frá kvikmynd Ridley Scott, Prometheus,“ segir Óttar en eins og flestum ætti að vera kunnugt um fóru tökur á þeirri mynd fram hér á landi. „Þjóðarstoltið gerði nú svolítið vart um sig þar sem þeir voru algjörlega dolfallnir yfir landi og þjóð.“ Til stóð að John Cusack og Óttar ynnu saman að gerð kvikmyndarinnar Stopping Power árið 2007 sem Jan de Bont átti að leikstýra. Hins vegar mistókst að fjármagna kvikmyndina á síðustu stundu og því var öllu skellt í lás þrátt fyrir að Óttar og Cusack væru búnir að taka upp opnunaratriðið. „Í dag þykir hreinlega kraftaverk að ná svona óháðum kvikmyndum saman þar sem gríðarlega erfitt er að koma höndum yfir fjármagn. Það mátti litlu muna að þessi mynd félli saman fyrir rúmum mánuði en sem betur fer gekk fjármögnunin eftir og við fengum að halda okkar striki.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Lífið samstarf Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira