Atvinnumaður í spurningagerð 12. desember 2011 10:00 Stefán Pálsson varð atvinnumaður í spurningagerð en ekki í fótbolta. fréttablaðið/gva „
Maður semur spurningar á daginn og kennir í bjórskóla á kvöldin. Ef einhver hefði sagt mér þetta þegar ég var nítján ára þá hefði ég hlegið,“ segir Stefán Pálsson, atvinnuspurningahöfundur. Hann samdi spurningarnar fyrir Gettu betur-spilið sem er nýkomið út. Tíu ár eru liðin frá því að síðasta spil kom út og hefur nýja útgáfan að geyma tvö þúsund spurningar. Stefán semur einnig spurningar fyrir sjónvarpsþáttinn Ha? á Skjá einum og hefur aðstoðað við að semja spurningar fyrir Útsvarið í Sjónvarpinu. Að auki er hann duglegur við að halda pöbba-spurningakvöld. „Draumurinn um að verða atvinnumaður í fótbolta rættist ekki en þetta kom þá í staðinn,“ segir Stefán, ánægður með starf sitt. Með dugnaði sínum gerir hann einnig harða atlögu að sæmdarheitinu „Spurningahöfundur Íslands“. „Maður hefur notað þennan titil í gamni um Ólaf Bjarna Guðnason, aðalspurningahöfundinn í Útsvari. Hann hefur samið fyrir Meistarann og hinar og þessar keppnir en maður gerir alvarlega atlögu að titlinum.“ Stefán, sem er sagnfræðingur að mennt, hefur lengið stundað spurningagerð. Hann samdi spurningar fyrir fótboltaspil og var dómari í Gettu betur í tvö ár. Spurður hvort hann verði aldrei þreyttur á þessu segir hann: „Er þetta ekki eins og með flest annað? Maður verður bara betri með æfingunni. En ég skal viðurkenna að þegar maður fer í fjölskylduboð og einhver fær þá sniðugu hugmynd að fara í spurningaspil, þá fer maður bara að hjálpa til við að vaska upp.“- fb
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Lífið samstarf Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira