Magni vinnur með Kenneth Branagh 8. desember 2011 11:00 Magni Ásgeirsson stjórnaði tökunum í bresku útgáfunni af Wallander en þar fer Kenneth Branagh með hlutverk sænska lögreglumannsins. „
Ég má bara eiginlega ekkert tjá mig um málið. Ég er bundinn trúnaði og það er bara eins gott að standa við það," segir Guðmundur Magni Ágústsson kvikmyndatökumaður. Hann stjórnaði tökum í sjónvarpsseríu BBC, breska ríkissjónvarpsins, um sænska lögreglumanninn Wallander sem Kenneth Branagh leikur. Wallander-þættirnir eru byggðir á bókum eftir Henning Mankell og hafa notið talsverðra vinsælda í Bretlandi en margir Íslendingar ættu að kannast við sænsku útgáfurnar sem hafa verið sýndar á RÚV. „Ég held að þetta verði ekki sýnt fyrr en á næsta ári," segir tökumaðurinn en tökurnar fóru fram í Svíþjóð. Magni, eins og hann er jafnan kallaður, hefur verið búsettur í Bretlandi undanfarin ár og unnið sem kvikmyndatökumaður þar við góðan orðstír. Hann var meðal annars kvikmyndatökumaður sjónvarpsseríunnar Spy sem sýnd var á Sky 1 og svo Free Agents á Channel 4 en þeir þættir fengu prýðilegar viðtökur og voru meðal annars endurgerðir í Bandaríkjunum. Magni hefur ekki mikið gert af því að vinna hér á landi. „Ég kem þó alltaf í heimsókn reglulega," segir tökumaðurinn en hann stjórnaði þó kvikmyndatökum á heimildarmynd Sigur Rósar, Heima, og svo íslensku kvikmyndinni Brim. „Ég vann líka með Berki Sigurþórssyni að stuttmyndinni Come to Harm," segir Magni en sú mynd hefur vakið töluverða athygli. - fgg
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Brennivín hlaut gullverðlaun Matur Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira