Boðið að sýna í New York 7. desember 2011 11:00 Vilborg, Eva Rún og Eva Björk hlakka mikið til að kynna íslenska sviðslist vestanhafs. fréttablaðið/stefán „
Við erum ótrúlega ánægðar með þetta,“ segir Eva Rún Snorradóttir, einn þriggja meðlima Framandverkaflokksins Kviss búmm bang. Evu ásamt Vilborgu Ólafsdóttur og Evu Björk Kaaber hefur verið boðið að sýna verk sitt, Safari, á listakaupstefnunni APAP Global Performing Arts, í New York í janúar. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar. Eva segir verkið munu eiga vel við á kaupstefnunni. „Þetta er ádeiluverk á það þegar list verður söluvara. Við kennum fólki að ná 100 prósent árangri á listahátíðum og hvernig það á að umgangast mikilvæga aðila - þarna úti verða í rauninni eingöngu mikilvægir aðilar þannig að þetta verður svona „extreme“ útgáfa af verkinu.“ Kviss búmm bang verður einn þriggja fulltrúa íslenskrar sviðslistar á stefnunni, sem ætlað er að kynna það áhugaverðasta í sviðslistum á alþjóðavettvangi. „Þetta er glæsileg kynning fyrir okkur. Allir sem sjá verkið eru festival-haldarar í Norður-Ameríku og það væri gaman ef boð á góðar hátíðir fylgdu í kjölfarið,“ segir Eva, en þær stöllur hafa þegar ferðast víða með verkið, til Frakklands, Finnlands og Litháen. Listahópurinn vinnur nú að nýju verki sem verður frumsýnt í febrúar. „Verkið heitir Hótel Keflavík. Það kemst takmarkaður fjöldi gesta að á sýninguna því þetta er sólarhrings þátttökuverk. Sýningargestir gista á Hótel Keflavík og fylgja handriti frá okkur,“ segir Eva og bendir þeim sem vilja forvitnast frekar um verkið að hafa samband á kvissbummbang@gmail.com.-bb
Mest lesið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Sjá meira