Öskubuskuævintýri í bandarísku sjónvarpi 24. nóvember 2011 12:30 Martinez sigraði hug og hjörtu bandarísku þjóðarinnar í Dancing With the Stars en þar bar hann sigur úr býtum með dansfélaga sínum, Karinu Smirnoff. Martinez slasaðist alvarlega þegar bíll hans keyrði á jarðsprengju í Írak. Hann hefur beitt sér fyrir málstað slasaðra hermanna en sjálfur hefur Martinez þurft að gangast undir fjölda aðgerða vegna brunasára sem þekja rúmlega fjörutíu prósent líkamans.
DANCING WITH THE STARS THE RESULTS SHOW - "Episode 1310A" - After ten weeks of the most riveting performances, dramatic eliminations and shocking moments of the show's 13 seasons, J.R. Martinez and Karina Smirnoff were crowned "Dancing with the Stars" champions, on the two-hour Season Finale of "Dancing with the Stars the Results Show" on TUESDAY, NOVEMBER 22 (9:00-11:00 p.m., ET). (Photo by Adam Taylor/ABC via Getty Images) 956745/ J.R Martinez og Karina Smirnoff Bandaríska þjóðin átti ekki í miklum erfiðleikum með að velja sigurvegarann í bandaríska raunveruleikaþættinum Dancing with the Stars á þriðjudagskvöld. Nafn J.R. Martinez var skrifað á bikarinn um leið og stríðshetjan fyrrverandi steig sinn fyrsta dans. Raunveruleikaþáttaröðin Dancing with the Stars hefur notið feykilegra vinsælda vestanhafs en þar keppa oft svokallaðar b-stjörnur í samkvæmisdönsum. Þeim til halds og traust eru færir atvinnudansarar sem leiða þá í gegnum heim dansins. Úrslitin í þrettándu þáttaröðinni á ABC-sjónvarpsstöðinni voru síðan kunngjörð á þriðjudagskvöld og það voru Rob Kardashian, Ricki Lake og J.R. Martinez sem kepptu til úrslita. Eflaust þekkja ekki margir þessi nöfn; Rob Kardashian er af hinni alræmdu Kardashian-ætt, Ricki Lake lék aðalhlutverkið í upphaflegu Hairspray-myndinni og J.R. Martinez leikur í sjónvarpsþáttunum All My Children. Snemma var hins vegar ljóst hvert stefndi; J.R. Martinez og ótrúleg saga hans snart alla bandarísku þjóðina. Það er ekkert skrítið; sagan er ansi mögnuð. Martinez er fyrrverandi stríðshetja. Hann þjónaði landi sínu og þjóð í Írak allt þar til hann varð fórnarlamb jarðsprengju í febrúar 2003. Martinez sat þá við stýrið á Hummer-bifreið bandaríska hersins og keyrði yfir jarðsprengju sem hafði verið komið fyrir í borginni Karbala. Martinez sat fastur inni þegar bíllinn varð eitt eldhaf en félögum hans tókst að ná honum út. Saga Martinez vakti snemma mikla athygli og Washington Post ræddi við hermanninn árið 2004 þegar hann var að jafna sig. Þá hafði Martinez gengist undir 27 aðgerðir, sú lengsta hafði staðið yfir í ellefu klukkustundir. Brunasár þöktu fjörutíu prósent líkamans og Martinez lá í dái í þrjár vikur. „Ég er svo öruggur með sjálfan mig að þegar fólk hefur horft á mig í smá tíma gleymir það örunum í andlitinu á mér og sér að ég er mannvera sem elskar að vera til og skemmta sér,“ hefur Washington Post eftir Martinez. Hermaðurinn fór fljótlega aðbeita persónutöfrum sínum og heillandi framkomu til að tala máli hermanna og koma fram fyrir hönd þeirra þúsunda sem hafa slasast alvarlega í þjónustu ríkisins á vígvellinum. Og Martinez lét gamlan draum sinn rætast og reyndi við leiklistargyðjuna og uppskar hlutverk í sjónvarpssápunni All My Children sem sýnd er á ABC. En það var hins vegar með frammistöðunni í Dancing with the Stars sem Martinez vann hug og hjörtu landa sinna. Hinn 3. október felldi hver einasti áhorfandi tár þegar Martinez og dansfélagi hans, Karina Smirnoff, túlkuðu þennan skelfilega atburð í febrúar 2003 með dansi sínum. Og þrátt fyrir veikburða fætur og líkamlegt erfiði steig Martinez varla feilspor í þáttunum og átti aldrei á hættu að detta úr leik. Að mati bandarískra fjölmiðla er sigur Martinez í þáttunum einn sá sætasti í raunveruleikasjónvarpssögunni, hann muni seint eða aldrei gleymast. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Fleiri fréttir Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Sjá meira