Eyjamenn með allar klær úti í lundaleit fyrir Þjóðhátíð 23. júlí 2011 15:00 Eyjamenn hafa þurft að verða sér úti um lunda að norðan vegna veiðibanns í Vestmannaeyjum. Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, segir lundann ómissandi hluta af hátíðinni. „
Ég og fjölskylda mín eldum alltaf lunda á Þjóðhátíð og höfum oft boðið fólki upp á hann. Í ár þarf maður að halda aðeins að sér höndum og bjóða fyrst sínum nánustu,“ segir Magnús Bragason, lundaverkandi í Vestmannaeyjum. Lundaveiði hefur verið bönnuð í Vestmannaeyjum og því hafa Eyjamenn þurft að bregða á það ráð að fá lunda að norðan til að menn fái góðgætið fyrir Þjóðhátíð, en reyktur lundi er ómissandi á veisluborðin í tjöldum Eyjamanna um verslunarmannahelgina. Að sögn Páls Scheving Ingvarssonar, formanns þjóðhátíðarnefndar, er lundinn ómissandi hluti af hátíðarhöldunum og sjálfur borðar hann lunda með bestu list enda sé hann afbragðsmatur. Magnús Bragason segir lítið um lunda en hann varð sér þó úti um einhverja fugla til að geta viðhaldið hefðinni. „Ég náði að klóra saman nokkur hundruð fuglum að norðan en veiðin hefur verið mjög lítil í ár vegna veðursældar í júlímánuði. Það má aðeins veiða fuglinn í háf og það þarf ákveðinn vind til að hann fljúgi en þar sem vindur hefur verið rólegur í júlí hefur lítið veiðst af lunda,“ útskýrir hann. Magnús segir veiðina svipaða í ár og undanfarin tvö sumur. Aðspurður segist hann þó styðja veiðibannið í Vestmannaeyjum af heilum hug. „Maður vill gjarnan halda hefðinni gangandi en vill ekki að gengið sé of nærri stofninum, ég vil að hann fái að njóta vafans, þannig að tilfinningarnar eru blendnar. Lundinn hefur þó sést í meira mæli hér í Eyjum en undanfarin ár en líklega þarf stofninn nokkur ár í viðbót til að geta rétt almennilega úr kútnum.“ sara@frettabladid.is.
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Fleiri fréttir Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Sjá meira