Opnar kaffihús á Snæfellsnesi 18. júlí 2011 12:00 Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur og eiginkona hans Guðlaug María Bjarnadóttir hafa opnað kaffihúsið Prímus á Hellnum við Snæfellsnes. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „
Þetta er hvorki gamall né nýr draumur hjá okkur hjónunum en við fengum fyrir tilviljun þennan stað upp í hendurnar og ákváðum að prufa að opna kaffihús,“ segir rithöfundurinn og leikskáldið Ólafur Haukur Símonarson, sem opnaði á dögunum kaffihús með eiginkonu sinni Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur. Kaffihúsið nefnist Kaffi Prímus og er staðsett á Hellnum á Snæfellnesi. Guðlaug sér alfarið um reksturinn en Ólafur segist styðja vel við bakið á henni. „Ég hef nóg á minni könnu í sumar og er því lítið að sniglast þarna en Guðlaug ber hitann og þungann af daglegum rekstri. Ég hoppa inn ef hún er alveg að bugast,“ segir Ólafur í glettnum tón en þau hjónin hafa verið með annan fótinn á Snæfellsnesi undanfarin ár og þekkja vel til svæðisins. „Við erum bara að prufa þetta í sumar til að byrja með og ég býst ekki við því að við höldum áfram í haust en Guðlaug er í fullu starfi sem kennari,“ segir Ólafur og bætir við að það hafi verið nóg að gera á kaffihúsinu frá opnun í júní. „Við erum umvafin náttúruperlum hérna og svæðið mjög vinsælt hjá ferðamönnum. Það er ekki amalegt að vera við rætur þjóðgarðsins,“ segir Ólafur og vísar þar í þjóðgarð Snæfellsjökuls.-áp
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Sjá meira