Rosaleg góð auglýsing fyrir Steed Lord 14. júlí 2011 14:30 Þau Svala, Egill og Einar í hljómsveitinni Steed Lord eru í fríi á Íslandi og Svala ætlar að nýta tímann og selja fötin sín á laugardaginn. „
Við erum hérna í tíu daga heimsókn. Ákváðum að koma við á leið okkar heim frá Evrópu þar sem við vorum að spila,“ segir söngkonan Svala Björgvinsdóttir en hljómsveitin Steed Lord hefur haft í nógu að snúast síðan lag þeirra hljómaði í einum vinsælasta raunveruleikaþætti Bandaríkjanna, So You Think You Can Dance. „Að vera með lag í svona stórum þætti er rosalega góð auglýsing og ekkert nema gaman að því. Við fengum svakalega góð viðbrögð í kjölfarið og lagið, Vanguardian, hoppaði beint á rafræna vinsældalista iTunes í Bandaríkjunum,“ segir Svala og bætir við að þau séu að fá mikið af tilboðum um að spila út um allan heim vegna þáttanna. Það eru skemmtilegir tímar framundan hjá Steed Lord en þegar þau koma aftur út til Los Angeles þar sem sveitin er búsett, tekur við vinna við nýja plötu og klipping á nýju myndbandi. „Við förum beint í að klippa nýtt myndband við lagið Bed of Needles en það unnum við í samstarfi við danshöfundinn Sonyu Tayeh. Við fylgjum því svo eftir með mikilli herferð á netinu og tónleikatúr á vesturströnd Bandaríkjanna,“ segir Svala en sveitin er byrjuð á nýrri plötu sem á að koma út í byrjun næsta árs. Svala ætlar samt ekki bara að endurhlaða batteríin á Íslandi því hún ætlar að nýta tímann og seja fötin sín. „Ég er að selja öll föt sem ég hef átt hérna á Íslandi og losa heila geymslu. Ég hef alltaf átt mikið af fötum og skóm og eru sum fötin næstum ónotuð. Ég sel þetta allt mjög ódýrt því ég vil bara losna við allt,“ segir Svala en markaðurinn er á laugardaginn á Miðstræti 12 og hefst klukkan 12. -áp
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira