Skálaði með Kate Moss 13. júlí 2011 08:00 Nick Knowles, Mick Hutson og Hörður Ellert Ólafsson við þyrluna sem flaug með félagana yfir Glastonbury.
Skál! Kate Moss gisti á glæsilegu óðalssetri á meðan Glastonbury-hátíðinni stóð yfir. „Það var ótrúlegt ævintýri að skála með Kate Moss og ferðast með þyrlu um tónleikasvæðið rúmlega hálftíma seinna,“ segir ljósmyndarinn Hörður Ellert Ólafsson, um einstaka upplifun sína af tónlistarhátíðinni Glastonbury í júní. Nick Knowles, fyrrverandi markaðsstjóri tónlistartímaritsins Q, var fenginn til að sjá um skrifstofu tímaritsins á hátíðinni og fékk ýmis fríðindi, t.d boðsmiða handa einum besta vini sínum Herði, en þeir kynntust þegar Nick bjó á Íslandi. Á hátíðinni gistu félagarnir í hjólhýsi líkt og allt fræga fólkið. Barinn Lulu’s var nálægt svæðinu sem þeir gistu á, en Hörður mætti þar Bono, söngvara U2, einn daginn þar sem hann var að fá sér morgunmat. Fyrrnefnd Kate Moss gisti þó ekki í hjólhýsi heldur á óðalssetri fyrir utan tónleikasvæðið. Hörður keyrði þangað einn daginn ásamt Nick og einum áhrifamesta ljósmyndara heims á sviði tónlistar, Mick Hutson. Forríkir gestir hátíðarinnar gista á óðalssetrinu og borga rúmlega milljón fyrir þrjár nætur. Hörður segir að þarna hafi hann séð hversu mikil stéttaskipting er í Englandi — hún ríki meira að segja á tónlistarhátíð. Á óðalssetrinu skáluðu félagarnir í hvítvíni með fólki á borð við Wayne Rooney og Kate Moss. En fyrirsætan kom upp að Herði og spurði hvaðan hann væri, eflaust eftir að hafa heyrt hann tala íslensku í gríni. Á óðalssetrinu var þyrlupallur með fimm þyrlum og skömmu síðar voru þeir komnir í yfirlitsferð um svæðið. Hátíðin var mikil upplifun fyrir Hörð sem ljósmyndara en hann fékk að vera meðal þrjátíu ljósmyndara af þrjúhundruð til að taka myndir fremst á tónleikum Queens of the Stone Age, með hundrað þúsund æsta áhorfendur á bakvið sig. „Gestir Glastonbury voru um 220 þúsund í ár svo þetta er eins og rúmlega allt Stór-Reykjavíkursvæðið fari saman í útilegu í Galtalæk yfir eina helgi,“ segir Hörður og bætir við að Glastonbury verði ekki á næsta ári því grasið og gróðurinn fái að jafna sig fimmta hvert ár. hallfridur@frettabladid.is
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Fleiri fréttir David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Sjá meira