Íslenska konan kom í kreppunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. maí 2011 16:32 Guðfinnur Halldórsson bílasali.
Lífið er einfaldara eftir að bankahrunið varð, segir Guðfinnur Halldórsson bílasali, betur þekktur sem Guffi, í samtali við bandaríska stórblaðið New York Times. Guffi segist hafa minni peninga á milli handanna, en það geri lífið einfaldara. Guffi segist hafa selt marga bíla í uppsveiflunni en ekki hafa sparað mikið. Að eigin sögn notaði hann peningana í að ferðast, fara á skíði og njóta lífsins með útlenskum kærustum. „Taktu eftir þessum fallegu stelpum frá Úkraínu og Sviss," segir Guffi í samtali við blaðamann New York Times. „Þú ert eins og barn í leikfangaverslun. Ég hef nokkrum sinnum komið með þær heim svo þær geti verið í fríi hérna. Svo sýni ég þeim Ísland," segir Guffi um stúlkurnar. Hann bætir því við að með þessu hafi hann eflt ferðamannabransann á Íslandi. Átti glæsilegar kærustur frá Sviss og ÚkraínuBlaðamaður New York Times segir að fyrst hafi lífið verið algjör lúxus fyrir Guffa þegar hann skautaði niður Laugaveginn með glæsilegum kærustum og seldi sömu eðalvagnana aftur og aftur. Síðan varð hann þreyttur á þessu öllu saman, því að hann vann oft 13 tíma á sólarhring. „Veistu hvað það tekur langan tíma að fara með pappírana í bankann þegar einhver tekur lán fyrir bíl?" spyr Guffi blaðamanninn. Guffi varð meira að segja þreyttur á útlensku kærustunum. „Ég fann stelpur á Netinu. Það er mikil vinna. Þú ert að lesa öll þessi heimskulegu bréf sem þær senda," segir Guffi. Kominn með íslenska konuGuffi varð því feginn þegar kreppann skall á haustið 2008. Hann selur núna færri bíla og þénar minni pening. Hann á hans vegar nóg til að bíta og brenna og lífsstíllinn er einfaldari. „Ég geri ekkert heimskulegt og ég er ekki í neinu stressi lengur," segir Guffi. „Ég á ekki lengur úkraínskar og svissneskar kærustur. Ég á íslenska konu núna," segir Guffi.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira