Kiriyama Family sigurvegari 3. febrúar 2011 15:00
Kiriyama Family bar sigur úr býtum í hljómsveitakeppni sem fyrirsætuskrifstofan Eskimo og upptökuteymið Benzin Music/Sýrland stóðu fyrir í tilefni af Ford-keppninni sem verður haldin í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn. Um þrjátíu hljómsveitir tóku þátt og stóð Kiriyama Family uppi sem sigurvegari með lagið Sneaky Boots. „Ég er mjög sáttur. Það er gaman að senda út fyrsta lagið sitt og vinna keppni í kjölfarið,“ segir Víðir Björnsson, liðsmaður Kiriyama Family. „Við vissum ekkert hvernig móttökur við myndum fá. Við gáfum lagið út á netinu á miðnætti á gamlárskvöld og ég er nokkuð viss um að þetta sé fyrsta íslenska lagið sem var gefið út á þessu ári.“ Víðir og félagar fá í verðlaun einn dag í hljóðveri og verður sigurlagið tekið upp af Benzin-bræðrunum Daða og Berki Hrafni Birgissonum. Einnig verður gert myndband við lagið sem verður leikstýrt af Ásgrími Má, fatahönnuði og leikstjóra. Jafnframt mun Kiriyama Family spila fyrir framan fjögur hundruð boðsgesti á Ford-keppninni ásamt hljómsveitunum Feldberg og Sykri. Andrea Brabin hjá Eskimo er ánægð með þessa nýju hljómsveitakeppni. „Það var rosalega góð þátttaka og ótrúlega mikið af efnilegum böndum, sem kom okkur svolítið á óvart,“ segir hún og vonast til að keppnin verði árlegur viðburður í framtíðinni. - fb Hér fyrir ofan má sjá myndbandið við lagið Sneaky Boots með Kiriyama Family.
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Ríflega tuttugu verk eftir Ella Egils og dóttur hans til sýnis Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Fleiri fréttir Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Ríflega tuttugu verk eftir Ella Egils og dóttur hans til sýnis Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Sjá meira