Kevin Smith kemur til Íslands 12. júlí 2011 12:00 Bandaríski leikstjórinn spjallar við íslenska aðdáendur sína í nóvember. nordicphotos/getty „
Ég er búinn að vera aðdáandi lengi," segir Guðlaugur Hannesson sem skipuleggur sýningu með Hollywood-leikstjóranum Kevin Smith í Hörpunni í nóvember. Þar verður leikstjórinn, sem er þekktastur fyrir myndirnar Clerks, Chasing Amy og Dogma, með uppistand og svarar spurningum áhorfenda úr salnum. „Ég fékk samband við umboðsmanninn hans árið 2008 en þá kom þetta blessaða hrun. Ég er búinn að vera í stöðugum samskiptum síðan þá," segir Guðlaugur sem var að vonum ánægður þegar samningar tókust loks í síðustu viku. Smith mun dvelja hér á landi í nokkra daga og hlakkar hann mikið til að heimsækja Ísland í fyrsta sinn. Guðlaugur er 29 ára nemi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Hann lofar skemmtilegri sýningu í Hörpunni enda Smith vanur maður þegar svona viðburðir eru annars vegar. „Hann er mjög góður sögumaður og síðan eru ákveðnir valdir sem fá að standa upp og spyrja spurninga um kvikmyndaiðnaðinn og sögurnar sem tengjast honum persónulega," segir Guðlaugur. Eftir sýninguna verður svokallað „meet and greet" þar sem þeir sem eiga dýrustu miðana geta spjallað við Smith augliti til auglits. Sýningin verður í Eldborgarsalnum sem tekur 1.600 manns og hefst forsala miða í þessari viku. „Svona viðburður hefur ekki átt sér stað á Íslandi áður. Quentin Tarantino kom hingað 2002 en eitthvað í þessum strúktúr hefur ekki sést hérna áður. Íslendingar eru alltaf að kvarta yfir því að það sé ekkert að gerast þannig að ég býst við góðri mætingu," segir Guðlaugur. -fb
Mest lesið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Fleiri fréttir David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Sjá meira