Diskókvöld tileinkað konum 21. desember 2011 11:00 Plötusnúðurinn Margeir verður í diskógírnum á annan í jólum.
Diskókvöld Margeirs verður í þetta sinn haldið á Kaffibarnum á annan í jólum. Kvöldið verður tileinkað konunni og fá allar konur frítt inn á staðinn. Diskókvöld Margeirs hafa í gegnum tíðina verið afar vinsæl í skemmtanalífi borgarbúa. Síðasta kvöld var haldið á Austri þar sem plötusnúðarnir Margeir og Jón Atli renndu sér um á rúlluskautum við góðar undirtektir gesta. Í þetta sinn verður diskókvöldið haldið á Kaffibarnum og verður það tileinkað konunni. „Það er ekki hægt að neita því að konur hafa hingað til verið mjög spenntar fyrir þessari tegund tónlistar. Á diskótímabilinu var einnig mjög mikið um þessi konukvöld þannig að þetta passar vel inn í konseptið,“ segir Margeir. „Styrkur og hlýja er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um konur. Þessi tvö orð lýsa einnig diskótónlistinni hvað best. Því má segja að diskótónlistin sé holdgervingur konunnar. Hún leiðbeinir, nærir og fæðir. Móðureðlið spyr ekki um þjóðerni frekar en diskóið,“ segir hann spekingslega og er langt í frá hættur: „Á meðan hátalararnir fæða tvö bassatrommuslög á sekúndu og dansgólfið blikkar erum við öll börn hinnar heilögu gyðju diskódansins. Konan í mér mun gera mig ódauðlegan. Af miðju dansgólfinu leitar hún augnaráð mitt uppi. Er augu okkar mætast er sem hjarta mitt sundrist í óteljandi litla hluti sem í augnablik glóa eins og díóður áður en þeir tvístrast yfir dansgólfið. Þar mynda þeir dansara sem dansa í rökkrinu og hitanum. En þetta fjöregg er hvoru tveggja viðkvæmt og brothætt. Rétt eins og lífið. Boðskapurinn er því krafa um lotningu fyrir lífinu. Lífinu sem við getum ekki skapað en eigum allt of auðvelt með að brjóta,“ segir diskókóngurinn. Frítt verður inn fyrir konur en dýrt fyrir karlmenn. Um svokallaða jákvæða mismunun verður að ræða að mati Margeirs. „Þeir karlmenn sem vilja ganga í söfnuðinn munu þurfa að greiða fyrir þann heiður. Eins konar tíund til dansgyðjunnar sem verður síðan gefin til góðs málefnis,“ greinir hann frá. „Mugison er búinn að leggja línurnar með því að halda ókeypis skemmtanir. Það má segja að þetta sé í anda Mugisons nema bara fyrir konur. Ég vona bara að miðasölusíðan muni anna álagi.“ Miðasalan fer fram á Midi.is og við dyr Kaffibarsins ef húsrúm leyfir. „Þetta er staður sem hefur alltaf hýst postula diskótónlistarinnar, veitt þeim næturskjól, líkt og hlýjar hlöður sem hýstu lærisveina og vitringa leið til Betlehem og Mekka. Staður sem nýjustu rannsóknir benda til að sé fæðingarstaður ástarinnar í miðborg Reykjavíkur.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira