Þrýstingur á vegaframkvæmdir frá verkefnalausum verktökum Heimir Már Pétursson skrifar 24. júní 2011 19:00 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mynd/ANTON
Innanríkisráðherra segir umræðu um auknar vegaframkvæmdir fara fram undir þrýstingi frá verkefna litlum verktökum. Ekki verði farið í flýtiframkvæmdir í vegagerð sem kalli á veggjöld en í ár er sex milljörðum varið til nýframkvæmda í vegagerð. Í tengslum við gerð kjarasamnnga var rætt um að fara í flýtiaðgerðir í vegamálum sem fjármagnaðar yrðu með vegtollum og var meðal annars rætt um tvöföldun Suðurlandsvegar í því samhengi. Innanríkisráðherra segir þetta hafa verið skoðað en niðurstaðan orðið að fara ekki í slíkar framkvæmdir á fyrrgreindum forsendum. Í fjárlögum þessa árs eru sex milljarðar til nýframkvæmda í vegagerð og er nú þegar langt gengið á þá fjármuni. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að viðbótarfjármagn verði ekki sótt í ríkissjóð til vegaframkvæmda. „Við erum hins vegar að leita leiða til að ráðast í framkvæmdir sem eru til þess fallnar að skapa sem allra flest störf. Þær ráðagerðir og hugmyndir sem voru settar fram að hálfu samtaka atvinnulífsins voru ekki þess eðlis. Þær voru ekkert sérstaklega atvinnuskapandi nema síður sé," segir Ögmundur. Stórframkvæmdir eins og tvöföldun vega séu ekki mjög mannaflsfrekar framkvæmdir. Hins vegar sé breikkun einbreiðra brúa og önnur slík verkefni atvinnuskapandi. „Við erum að ráðast í slíkar aðgerðir á Vestfjörðum svo dæmi sé tekið. Þar settum við 350 milljónir til viðbótar við það sem áður hafði verið ákveðið. Þannig að við erum að leita leiða til að bæta öryggi á vegunum, til að bæta samgöngukerfið og skapa sem flestu fólki störf. Það erum við að gera," segir innanríkisráðherra. Ögmundur segir andstöðuna við vegtolla mikla, en lífeyrissjóðirnir hafi eingöngu verið tilbúnir að lána til einkaframkvæmda í vegagerð, sem almenningur hafi átt að greiða fyrir með slíkum gjöldum. Ögmundur svaraði því játandi, þegar hann var spurður hvort honum finndist umræðan ráðast af hagsmunum verktaka sem skorti verkefni. „Það er málið," sagði innanríkisráðherra.
Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Sjá meira