Lífið

Seld á 100 milljónir

citizen Kane Citizen Kane hefur löngum verið talin ein besta kvikmynd sögunnar.
citizen Kane Citizen Kane hefur löngum verið talin ein besta kvikmynd sögunnar.
Óskarsverðlaunastyttan sem leikstjórinn Orson Welles fékk fyrir handrit kvikmyndarinnar Citizen Kane var seld á uppboði í Kaliforníu fyrir rúmar eitt hundrað milljónir króna. Citizien Kane kom út árið 1941 og hefur löngum verið talin ein besta mynd sögunnar.

Welles samdi handrit myndarinnar, leikstýrði henni og lék aðalhlutverkið. Hún var tilnefnd til níu Óskarsverðlauna en fékk aðeins ein fyrir handritið. Ekki hefur verið gefið upp hver keypti styttuna en töframaðurinn David Copperfield átti næsthæsta boðið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.