Árni og Sigtryggur skrifa spennandi fjölskyldudrama 22. desember 2011 08:15 Árni Ólafur Ásgeirsson og Sigtryggur Magnason eru að skrifa sjónvarpsþáttaröð sem gæti farið í tökur næsta vetur.
Árni Ólafur Ásgeirsson og Sigtryggur Magnason leiða saman hesta sína við gerð sjónvarpsþáttaraðarinnar Mist. Fjölskyldudrama með spennuívafi, að sögn leikstjórans. „Þetta er fjögurra þátta sería sem við erum að skrifa,“ segir Árni Ólafur Ásgeirsson kvikmyndagerðarmaður. Árni leikstýrði síðast hinni margverðlaunuðu Brim sem hann gerði með leikhópnum Vesturporti en er núna að skrifa handrit að sjónvarpsþáttaröð með Sigtryggi Magnasyni sem hefur verið gefið vinnuheitið Mist. Árni segir þetta vera fjölskyldudrama með spennuívafi, ekki þó neina glæpasögu. „Þetta er meira drama en verður vonandi bæði spennandi og skemmtileg.“ Hann segir vinnuna hafa verið í gangi síðastliðið ár og reiknar með því að þeir félagar reki smiðshöggið á handritagerðina í byrjun næsta árs. „Þá verður reynt að fara í fjármögnun. Ég er voðalega spenntur fyrir þessu og sjónvarp er mjög heillandi, það gefur manni meiri tíma til að kanna karaktera og vinna í sögunni. Auðvitað er þetta bara mjög góð afsökun til að gera fjögurra klukkustunda langa bíómynd,“ en upphaflega stóð til að handritið færi á hvíta tjaldið. „Ef allt gengur að óskum getum við vonandi farið í tökur á næsta ári,“ segir Árni en Snorri Þórisson, eigandi Pegasus, er með þeim í verkefninu. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira