Botnleðja sneri aftur á frábærum tónleikum 22. desember 2011 11:00 Halli, trommuleikari Botnleðju, var ánægður með viðtökurnar.
Hinir árlegu X-mas tónleikar útvarpsrásarinnar X-ins voru haldnir í minningu Hermanns Fannars Valgarðssonar í Kaplakrika á þriðjudagskvöld. Húsið var fullt, andrúmsloftið rafmagnað og þakið ætlaði að rifna af íþróttahöllinni þegar leynigestir kvöldsins, Botnleðja, stigu á svið. „Þetta var í einu orði sagt frábært," segir Heiðar Örn Kristjánsson, söngvari og gítarleikari Botnleðju. Sveitin hafði ekki komið fram í sjö ár þegar hún steig á svið í Kaplakrika en Heiðar sagði þá félaga engu hafa gleymt. „Við vorum alveg himinlifandi með þetta. Stemningin var æðisleg og við þurftum ekki að kafa djúpt til að rifja þetta upp." Nærri 4.000 manns nutu tónlistarinnar í Kaplakrika, en auk Botnleðju steig ótrúlegur fjöldi vinsælustu hljómsveita Íslands á svið. Ágóðinn af tónleikunum rennur óskiptur í sjóð til styrktar fjölskyldu Hermanns. Aðspurður segir Heiðar þeim Botnleðjuliðum hafa verið ljúft og skylt að taka skóna af hillunni fyrir tónleikana. „Hemmi var góður vinur okkar, bæði í gegnum Botnleðju á sínum tíma og starfið í FH. Þetta var aldrei spurning, okkur langaði að gera þetta." Heiðar útilokar ekki að sveitin láti meira að sér kveða á næstunni, nú þegar þeir séu komnir í form. „Það er aldrei að vita. Við eigum eftir að hittast og ræða saman strákarnir og fara yfir hvað við viljum gera. Ég get ekki lofað neinu en ég útiloka ekkert."bergthora@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Björk og Yara nýtt par Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira