Myndaði músu Lagerfelds í foreldrahúsum 22. desember 2011 20:00 Sednaoui hefur setið fyrir í fjölda virtra tímarita. Forsíða the journal sýnir hana í bíl með íslenskt landslag í bakgrunni.
Myndir ljósmyndarans Magnúsar Unnars af ítölsku ofurfyrirsætunni Elisu Sednaoui prýða forsíðu og blaðsíður bandaríska listatímaritsins the journal í mánuðinum. Tökur fóru fram á Íslandi þar sem Magnús notaði meðal annars heimili foreldra sinna á Seltjarnarnesi sem umgjörð. Magnús Unnar segir ritstjóra the journal, Michael Nevin, hafa átt hugmyndina að myndaþættinum. „Ég var þegar búinn að láta í ljós við hann þá löngun að mynda vini eða félaga í kringumstæðum sem ég þekkti og þar sem hann vissi að okkur Elisu er vel til vina fól hann mér það verkefni að mynda hana á Íslandi." Sednaoui hefur setið fyrir í helstu tískutímaritum heims, komið fram í kvikmyndum og sýnt fyrir Roberto Cavalli, Giorgio Armani, Dior og Versace meðal annarra. Þá hefur sjálfur Karl Lagerfeld, yfirhönnuður Chanel, kallað hana sína helstu músu. Íslandsferðin var því viss viðbrigði fyrir fyrirsætuna sem er vön að vera umkringd aðstoðarfólki og stjörnum; Magnús Unnar eini ferðafélaginn og tökustaðirnir eins lágstemmdir og hugsast getur. Þar á meðal Seljavallalaug, inni í bíl þar sem Sednaoui teygir úr sér í framsætinu með íslenskt landslag í bakgrunni og heimili foreldra Magnúsar Unnars sem segir að þeim hafi þótt gaman að taka á móti stjörnunni.Elisa Sednaoui er guðdóttir tískugoðsins Christian Louboutin. Hér er hún ásamt Karl Lagerfeld sem kallar hana músu sína.Magnús Unnar hefur myndað fyrir ýmis virt og þekkt tímarit á borð við Vogue, Harper"s Bazaar og V Magazine. Hann segir margvíslega kosti fylgja tökum eins og fyrir the journal. „Yfirleitt setja myndatökur fyrir tískuþætti manni skorður. Þarna var hins vegar enginn, hvorki stílistar né hárgreiðslufólk að þvælast fyrir okkur. Ég hafði þess vegna frjálsari hendur og vegna vinskapar okkar Elisu varð myndatakan miklu persónulegri," segir hann ánægður með útkomuna. Ekki er úr vegi að spyrja í lokin hvernig stjörnunni hafi líkað dvölin. „Henni fannst veran bara mjög skemmtilegt og það sem hún sá af landinu fallegt," segir Magnús Unnar. roald@frettabladid.is
Mest lesið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Sjá meira