Íslenski boltinn

Gunnhildur Yrsa: Liðsheildin er sterk hjá Stjörnunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Mér líður bara mjög vel eftir þessa viðurkenningu," sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, en hún var valinn besti leikmaður umferða 10-18 í Pepsi-deild kvenna í dag.

„Það var æðislega gaman að fá að taka þátt í þessu ævintýri með Stjörnunni og ná að vinna þennan titil".

„Við héldum aðeins uppá Íslandsmeistaratitilinn um helgina, en samt tekið nokkuð rólega á því".

„Þetta sumar er búið að vera mikil barátta hjá okkur Stjörnustelpum. Við erum kannski ekki með hæfileikaríkasta hópinn en liðsheildin og baráttan í liðinu er frábær".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×