Íslenski boltinn

Grétar: Vorum með yfirhöndina allan leikinn

Stefán Árni Pálsson á KR-vellinum skrifar
„Mér fannst þetta flottur leikur hjá okkur í kvöld," sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson, leikmaður KR, eftir frábæran bikarsigur, 2-0, gegn FH í kvöld.

„Við vorum virkilega þéttir allan leikinn og gáfum aldrei færi á okkur og vorum sterkir inná vellinum".

„FH-ingar komu sterkir til baka og vorum á köflum að sína meiri baráttu en við, en liðið náði að koma sér aftur á beinu brautina og klára leikinn".

„Við vorum í raun með yfirhöndina allan tímann og það var bara tímaspursmál hvenær markið myndi detta fyrir okkur".

Grétar Sigfinnur skoraði annað mark KR-inga undir lok leiksins. og gulltryggði farseðilinn í 8-liða úrslitin.

„Það var gríðarlega gaman að skora og sérstaklega þar sem sigurinn var aldrei alveg í hendi og því gott að gulltryggja hann í lokinn".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×