Íslenski boltinn

Ólafur Páll: Áttum skilið meira út úr þessum leik

Stefán Árni Pálsson á KR-vellinum skrifar
„Þetta er auðvita mikið svekkelsi og alltaf leiðinlegt að tapa leikjum hér," sagði Ólafur Páll Snorrason, leikmaður FH, eftir leikinn í kvöld.

„Mér fannst við eiga meira skilið útúr þessum leik og sumt féll bara ekki með okkur, en þá er ég sérstaklega að tala um vítaspyrnu sem við áttum að fá þegar leikmaður KR ver boltann á línu með hendi".

„Þetta datt bara með þeim í kvöld og við verðum bara að rífa okkur upp af rassgatinu og byrja að einbeita okkur að deildinni".

„Það er ekkert hvaða lið sem kemur hingað á KR-völlinn og skapar sér fullt af færum og við áttum í erfileikum með það í kvöld, en samt náðum við að skapa nokkur færi sem við áttum að nýta betur".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×