Íslenski boltinn

Trausti: Fengum nokkur hálffæri til að klára leikinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég er alls ekki sáttur við þessi úrslit,“ sagði Trausti Sigurbjörnsson, markvörður Þróttar, eftir 2-2 jafntefli gegn BÍ/Bolungarvík í dag.

„Við áttum góðan leik og stjórnuðum honum vel framan af, en við fáum á okkur mark í byrjun sem ég skrifa líklega á mig“.

„Í seinna markinu föllum við allt of mikið til baka og þeir fá algjört dauðafæri sem amma mín hefði getað klárað“.

„Við gerum vel að koma til baka í seinni hálfleik og fáum nokkur hálffæri til að klára leikinn en það gekk ekki“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×