Innlent

Egill og Gerplustúlkurnar árita Símaskrána

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Egill, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já, og Stella Rósenkranz, framkvæmdastjóri Gerplu, þegar skrifað var undir samkomulag um Gerplustelpurnar í dag.
Egill, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Já, og Stella Rósenkranz, framkvæmdastjóri Gerplu, þegar skrifað var undir samkomulag um Gerplustelpurnar í dag.
Egill Einarsson og Gerplustúlkurnar munu árita Símaskrána þegar hún kemur út á laugardaginn. Sérstök útgáfuhátíð verður haldin fyrir framan Hagkaup í Smáralind þegar símaskráin kemur út.

Þar mun Egill, sem er meðhöfundur bókarinnar, meðal annars gera grein fyrir þátttöku í gerð bókarinnar og ýmsar áhugaverðar uppákomur verða til viðbótar.  Gillz og Gerplustúlkur munu jafnframt árita eintök af Símaskránni fyrir gesti og gangandi, börnin fá blöðrur og ýmislegt fleira verður í boði.

Símaskráin skartar að þessu sinni myndum af Agli og Gerplustúlkunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×