Sérstakur saksóknari stofnun ársins að mati SFR 13. maí 2011 17:46
Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags í almannaþjónustu og VR en þetta er í sjötta sinn sem SFR velur Stofnun ársins. Umfang könnunarinnar hefur aukist umtalsvert frá því í fyrra. Í ár stóð öllum ríkisstarfsmönnum til boða að taka þátt í könnuninni, óháð stéttarfélagsaðild, en starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytisins er nú í samstarfi við SFR. Könnunin náði því til um 19.000 ríkisstarfsmanna og samtals til um 44 þúsund starfsmanna á almennum og opinberum vinnumarkaði. Könnunin sem er stærsta árlega vinnumarkaðskönnunin hér á landi mælir viðhorf starfsmanna til vinnustaðar síns og vinnuumhverfis. Sérstakur saksóknari var efstur í flokki stærri stofnana (50 starfsmenn og fl.) og fékk einkunnina 4,40, af 5 mögulegum, en Sýslumaðurinn í Vík var efstur í flokki minni stofnana (undir 50 starfsmenn) með einkunnina 4,79. Fjölbrautaskóli Snæfellinga bætir sig mest á milli ára og er réttnefndur hástökkvari ársins 2011. Hann var í neðsta sæti á lista minni stofnana sem komust á blað í fyrra en er nú í 19 sæti af 85. Á heildina litið kemur í ljós að aðeins dregur úr ánægju starfsmanna á vinnustöðum, sérstaklega á stærri stofnunum, en fylgni er milli starfsánægju og stærðar stofnana. Starfsfólk á minni stofnunum er almennt ánægðara en á þeim stærri. Starf og staða starfsmanns innan stofnunar skiptir einnig máli en stjórnendur og starfsfólk með mannaforráð er ánægðara í starfi en aðrir starfsmenn. Niðurstöður könnunarinnar í ár sýna að vaxandi óánægja er með launakjör, en ánægja með launakjör hefur nú minnkað tvö ár í röð. Í ár eru um 60% starfsmanna óánægðir með launakjör sín. Í fyrra voru það 51% og árið 2009 voru þeir 44%. Nokkur munur er á afstöðu kynja en konur eru mun óánægðari með laun sín en karlar. Þær eru hins vegar ánægðari með sveigjanleika í vinnu. Karlar segja oftar að ætlast sé til að þeir vinni yfirvinnu , en niðurstaða könnunarinnar bendir til þess að konur fái meira svigrúm til að útrétta í vinnutímanum en karlar. Þær segjast eiga auðveldara með að samræma vinnu og fjölskyldulíf en karlar gera. Einnig segjast konur eiga auðveldara með taka sumarfrí þegar þeim hentar en karlar.
Mest lesið Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun Innlent Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum Sjá meira