Þórunn Erna: Gott að hafa nóg fyrir stafni 20. júlí 2011 10:45 „Ég er þannig týpa að ég þrífst best þegar ég hef nóg að gera,“ segir Þórunn Erna. Mynd/Valgarður Gíslason „
Þegar mér bauðst hlutverkið í Gulleyjunni var ég ekki lengi að stökkva á það," segir Þórunn Erna Clausen en þegar Fréttablaðið náði af henni tali var hún stödd uppi í sumarbústað. „Það er gaman að segja frá því að Siggi {Sigurjónsson] hringdi í mig í hléi á einleiknum Ferðasögu Guðríðar og bauð mér hlutverkið. Það var búið að ganga vel að sýna einleikinn og þessi dagur varð því alveg extra góður eftir símtalið við Sigga.“ Eins og Fréttablaðið hefur greint frá skrifuðu félagarnir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson leikgerðina að Gulleyjunni upp úr skáldsögu Roberts Louis Stevenson og leikur Þórunn þar við hlið Björns Jörundar Friðbjörnssonar, Þóru Karitasar Árnadóttur og Kjartans Guðjónssonar. Sýningin verður frumsýnd í byrjun næsta árs og er samstarf Leikfélags Akureyrar og Borgarleikhússins. „Aðallega hlakka ég til að skylmast og berjast almennilega. Þegar ég var í skólanum var það eitt af mínum sérsviðum en ég hef voða lítið þurft að nota þá kunnáttu hingað til.“ Það er nóg fram undan hjá Þórunni eftir fríið en hún er aðstoðarleikstjóri í Galdrakarlinum í Oz, sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu í september. Einnig ætlar hún að hlaupa í skarðið fyrir Nínu Dögg Filippusdóttur í ferð Vesturports með leiksýninguna Faust til Kóreu í október. Sex mánuðir eru síðan eiginmaður Þórunnar, tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink, lést og vill Þórunn meina að öll vinnan hjálpi henni í sorgarferlinu. „Ég er þannig týpa að ég þrífst best þegar ég hef nóg að gera. Einnig er ég fegin að hafa eitthvað að hlakka til og einbeita mér að á þessum erfiðu tímum.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Gagnrýni „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Nornir komu saman á miðilsfundi Lífið Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Lífið Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Lífið Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Sjá meira