Innlent

Icesave fordæmalaus niðurlæging ríkisstjórnarinnar

„Stjórnin hefur tvívegis gert samninga og í hvorugt skiptið hafa þeir gengið eftir og verið hafnað. Það er ekki til fordæmi fyrir slíkri niðurlægingu," sagði Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins, í viðtali í Íslandi í dag.

Þar á hann við samninga ríkisstjórnarinnar við Breta og Hollendinga varðandi Icesave en samningunum var tvívegis hafnað.

Þorsteinn sagðist ekki geta spáð fyrir hvernig næsta lota fari en minntist á að við síðustu ráðherrastólaskipti hafi ríkisstjórnin áréttað að það væri meirihluti fyrir hendi. Að auki hafi þingmaður bæst við ríkisstjórnina, það er Þráinn Bertelsson.

„Mótmælin eru afleiðing af alvarlegri pólitískri kreppu í landinu," sagði Þorsteinn spurður út í fjölmenn mótmæli á Austurvelli í síðustu viku. Hann segir þau einnig afleiðingu þess að ríkisstjórnin virðist ekki geta gert samninga sem hún stendur við. Tekur hann sem dæmi Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, verkalýðsfélögin og Icesave auk samkomulaga við minnihlutann.

Þá segir Þorstein ríkisstjórnina hafa kúvent í málefnum varðandi úrræði fyrir heimili eftir mótmælin í síðustu viku. Hann segist þó sammála þeirri grundvallarhugmynd ríkisstjórnarinnar um að aðstoða þá sem eru verst staddir.

„En núna taka forsætisráðherra og dómsmálaráðherra þá ákvörðun að gjörbreyta stefnunni," segir Þorsteinn. Hann bendir á að fyrir mótmælin hafi ekki verið innistæða í þjóðarbúinu fyrir hugmyndir um niðurfærslur skulda heimilanna. Nú virðist annað vera upp á teningnum.

„Ef þetta reynist ekki raunhæft þá dýpkar kreppan," segir Þorsteinn.

Spurður hvort hann styðji enn Sjálfstæðisflokkinn og hvort hann telji flokkinn stjórntækan svaraði Þorsteinn: Já. Já.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×