Fótbolti

Hvar eru sóknarmennirnir á HM?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Clint Dempsey varð sjöundi varnar- eða miðjumaðurinn í röð til þess að skora á HM.
Clint Dempsey varð sjöundi varnar- eða miðjumaðurinn í röð til þess að skora á HM. Mynd/AP

Það er búið að skora sjö mörk í fyrstu fimm leikjunum á HM í Suður-Afríku en enginn sóknarmaður er þó enn kominn á blað í keppninni. Fimm miðjumenn og tveir varnarmenn hafa skorað mörkin á HM til þessa.

Framherjar Argentínu, Gonzalo Higuaín og Lionel Messi voru næstir því að komast á blað af sóknarmönnunum því þeir áttu alls sextán skot í 1-0 sigrinum á Nígeríu í dag.

Messi átti 12 af þessum skotum sem er það mesta sem sóknarmaður hefur átt í þessum fyrstu fimm leikjunum en Diego Forlan hjá Úrúgvæ átti fimm skot á móti Frakklandi.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu HM þar sem miðju- eða varnarmenn skora sjö mörk í röð án þess að framherji nái að skora í millitíðinni.

Síðasti sóknarmaðurinn til þess að skora í úrslitakeppni HM var Portúgalinn Nuno Gomes í 1-3 tapi á móti Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið 2006. Mörkin í úrslitaleiknum voru skoruð af franska miðjumanninum Zinedine Zidane og ítalska varnarmanninum Marco Materazzi.

Markaskoraranir á HM til þessa:

Siphiwe Tshabalala, Suður-Afríku (Miðjumaður)

Rafael Márquez, Mexíkó (Miðjumaður)

Lee Jung-Soo, Suður-Kóreu (Varnarmaður)

Park Ji-Sung, Suður-Kóreu (Miðjumaður)

Gabriel Heinze, Argentínu (Varnarmaður)

Steven Gerrard, Englandi (Miðjumaður)

Clint Dempsey, Bandaríkjunum (Miðjumaður)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×