Fótbolti

Bandaríska landsliðið vann Algarve-bikarinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bandaríska liðið fagnar sigri í dag.
Bandaríska liðið fagnar sigri í dag. Mynd /AP
Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér sigur á Algarve-mótinu með 3-2 sigri á Heims- og Evrópumeisturum Þjóðverja í úrslitaleik í dag. Þetta er í sjöunda sinn sem Bandaríkin vinnur þetta árlega mót.

Mistök Nadine Angerer, markvarðar Þýskalands,  á 70. mínútu urðu dýrkeypt því Lauren Cheney nýtti sér þau og skoraði sigurmarkið í leiknum.

Carli Lloyd og Abby Wambach komu bandaríska liðinu í 2-0 í fyrri hálfleik en Inka Grings skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og náði að jafna leikinn.

Bandaríska liðið vann 2-0 sigur á íslenska kvennalandsliðinu í opnunarleik mótsins en íslensku stelpurnar enduðu í 9. sæti eftir 3-0 sigur á heimastúlkum í Portúgal í lokaleik sínum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×