Fótbolti

Upp um eitt sæti á heims­listanum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði fyrri leiknum við Eistland sem lauk með jafntefli, líkt og leiknum í gær.
Andri Lucas Guðjohnsen skoraði fyrri leiknum við Eistland sem lauk með jafntefli, líkt og leiknum í gær. Anton/Vísir

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um eitt sæti eftir tvo sigra og tvö jafntefli í nýliðnum landsliðsglugga. Allir andstæðingar liðsins eru neðar á listanum.

Ísland byrjaði og lauk landsleikjaglugganum á jafntefli við Eistland, en síðari leiknum við Eista lauk með markalausu jafntefli í gær. Eistar eru neðstir liðanna fjögurra á listanum en þeir fóru líkt og Íslendingar taplausir í gegnum fjögurra leikja verkefnið.

Ísland fer upp um eitt sæti á heimslista FIFA, úr 74. sæti í það 73. Bæði Lúxemborg og Búlgaría falla á listanum. Búlgaría fer niður um heil fimm sæti í 90. sæti listans og Lúxemborg niður um þrjú í 101. sæti.

Eistar fara aftur á móti upp um heil fimm sæti en er áfram neðsta lið listans í riðlinum og sitja í 122. sæti.

Ísland er efst í riðlinum í C-deild Þjóðadeildarinnar með átta stig eftir fyrstu fjóra leikina, Eistland er með sex stig, Búlgaría fjögur stig og Lúxemborg þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×