Draumur Rúna Júl rætist í nýja Popppunktsspilinu 10. september 2010 06:00 Tónlistarmaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. fréttablaðið/valli
Tónlistarmaðurinn og þúsundþjalasmiðurinn Dr. Gunni er með mörg járn í eldinum. Nýtt Popppunktsspil kemur í búðir í októ-ber og framhald bókarinnar Eru ekki allir í stuði? er í bígerð, ásamt nýrri barnaplötu. Glænýtt Popppunktsspil er í framleiðslu úti í Kína þessa dagana og kemur það í verslanir í október. „Það er miklu flottara en síðasta spil. Þetta verða allt nýjar spurningar, eins og gefur að skilja, og öll hönnunin er ný. Leikurinn verður samt svipað uppbyggður,“ segir höfundurinn Dr. Gunni en spilið er byggt á samnefndum sjónvarpsþáttum. „Það var uppi hugmynd um að vera með lítið sjónvarp inni í spilinu sem átti að henda út um lítinn hótelglugga en það gekk ekki alla leið,“ segir hann og hlær. Fólk velur sér tónlistarmenn til að komast á milli reita í spilinu og þeir sem verða þess heiðurs aðnjótandi í þetta sinn eru Haffi Haff, Haukur Heiðar úr Diktu, Bjartmar Guðlaugsson, Gylfi Ægisson, Hera Björk, Ingó Veður-guð, Lay Low, Lóa úr FM Belfast og síðast en ekki síst Rúnar Júlíusson. „Hann átti að vera í fyrsta spilinu en svo fyrir undarleg mistök datt hann út. Hann var ekki nógu ánægður með þetta og minntist á það við mig þannig að núna er ég að uppfylla það sem átti að gerast fyrir fimm árum,“ segir Gunni. Sjöttu þáttaröð Popppunkts lýkur á næstunni með úrslitaþætti milli Skriðjökla og Lights on the Highway, sem verður hundraðasti Popppunktsþátturinn. Fyrst verður þó óhefðbundinn þáttur sem verður keppni milli grínistanna í Fóstbræðrum og Mið-Íslandi á laugardaginn. Spurður hvort Popppunktur haldi áfram næsta vetur segir Gunni það fara eftir því hvað Sjónvarpið vilji. Þeir Felix Bergsson eru til í alla vega eina seríu í viðbót, enda eiga flytjendur á borð við Amiinu, Diktu, Grýlurnar, Todmobile, Þursaflokkinn, Bubba og Megas enn eftir að láta ljós sitt skína. Gunni er með fleiri bolta á lofti því fram undan eru endurkomutónleikar með gömlu hljómsveitinni hans SH draumi á Iceland Airwaves-hátíðinni 14. október þar sem Ham stígur einnig á svið. Tvöföld viðhafnarútgáfa á plötu sveitarinnar, Goð, frá árinu 1988 kemur út um svipað leyti. Á næsta ári hyggur Gunni síðan á útgáfu nýrrar tónlistarbókar, framhaldsins á Eru ekki allir í stuði? sem kom út 2001 og hefur verið ófáanleg lengi. Um er að ræða endurbætta og uppfærða rokksögu sem verður töluvert frábrugðin fyrri bókinni. Eitís-kaflinn sem datt fyrir mistök út úr fyrri bókinni verður með í þessari auk þess sem síðustu tíu ár verða að sjálfsögðu með. Fleiri verkefni eru í bígerð, þar á meðal ný barnaplata sem myndi fylgja eftir vinsældum Abbababb sem kom út 1997. Hugmyndir hafa verið uppi um að gera Abbababb-bíómynd eða setja Abbababb-söngleikinn aftur á svið en Gunni vill frekar horfa fram á veginn og prófa eitthvað nýtt. „Ég nenni ekki að spila Prumpulagið endalaust.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Bíó og sjónvarp Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Bíó og sjónvarp Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Catherine O'Hara er látin Lífið Fleiri fréttir Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Sjá meira