Banni Tógó aflétt - Sepp Blatter reddaði þessu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. maí 2010 23:45 Sepp Blatter. Mynd/AFP
Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur fengið það í gegn að landslið Tógó fái að taka þátt í næstu Afríkukeppni landsliða í fótbolta. Afríska knattspyrnusambandið hafði áður dæmt landslið Tógó í bann í næstu tveimur Afríkukeppnum eftir að landsliðið fór heim frá Afríkukeppninni í Angóla í framhaldi þess að rúta liðsins varð fyrir skotárás. „Ég er mjög ánægður með að við höfum getað fundið laus sem báðir aðilar sætta sig við," segir í yfirlýsingu frá Sepp Blatter. „Þetta er mikilvægur áfangi fyrir allan knattspyrnuheiminn og sérstaklega gott fyrir afríska knattspyrnu," sagði ennfremur í yfirlýsingunni frá Blatter sem gekk í hlutverk sáttarsemjara í deilunni. Rúta Tógó varð fyrir hríðskotaárás tveimur dögum áður en Afríkukeppnin átti að hefjast og forustumenn þjóðarinnar ákváðu síðan að draga liðið úr keppni. Það hafði miklar afleiðinga fyrir keppnina enda var riðill Tógó-liðsins í kjölfarið aðeins skipaður þremur liðum, Gana, Fílabeinsströndinni og Búrkína Fasó. Emmanuel Adebayor hefur tilkynnt það að hann væri hættur að leika með landsliðinu í kjölfar árásarinnar og eftirmála hennar. Það er ekki ljóst hvort þessi þróun mála muni breyta einhverju þar um. Það er búið að draga í undankeppni næstu Afríkukeppni sem á að fara fram 2012 og Tógó var ekki með í þeim drætti. Nú þarf því að draga aftur en undankeppnin hefst í september og úrslitakeppnin fer síðan fram í Gabon og Miðbaugs-Gíneu í ársbyrjun 2012.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Golf Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Fleiri fréttir Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Sjá meira