Gunnfáni íslenskrar útrásar borinn uppi af mús 7. maí 2010 18:00 Maxímús Músíkús, hugverk þeirra Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldvinssonar, er að leggja undir sig heiminn.
Gengið hefur verið frá samningum við þýska útgáfurisann Schott Music um útgáfu á bókinni Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina eftir Hallfríði Ólafsdóttur og Þórarin Má Baldursson. Bókin sú, sem kom út hérlendis 2008, sló eftirminnilega í gegn og á dögunum kom út sjálfstætt framhald hennar, Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann. Fyrri bókin hefur þegar komið út í Kóreu og Færeyjum en í haust bætist Þýskaland í hópinn. Schott var ekki eitt um hituna í þetta sinn en hafði betur í uppboðsstríði um músina tónelsku. Schott Music er stærsta útgáfufyrirtæki sinnar tegundar á meginlandi Evrópu og meðal virtustu útgáfufélaga í heimi er sérhæfa sig í útgáfu tengdri tónlist. Fyrirtækið er yfir 200 ára gamalt, er með starfsemi í tíu löndum en það dreifir vörum sínum allan heim. Aukinheldur hefur félagið afar góð tengsl við tónleikahaldara og hljómsveitir víða um jarðir sem er dýrmætt fyrir Maxímúsar-verkefnið þar sem unnið er að því að fleiri setji upp Maxímúsar-tónleika líkt og Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur gert með svo góðum árangri hér heima. Tónleikadagskráin um Maxa hefur þegar verið bókuð í einu af virtustu tónleikahúsum veraldar, Concertgebouw-tónleikahöllinni í Amsterdam en þar mun Sinfóníuhljómsveit Hollands flytja efnisskrána og ferðast svo víðar með hana um landið. Maxi verður síðan einnig á ferðinni hinum megin á hnettinum í haust þar sem Sinfóníuhljómsveit Melbourne heldur þrettán Maxa-tónleika í Ástralíu. Nýverið var gengið frá samningi við ástralska forlagið Alto Books um útgáfu fyrri bókarinnar þar í landi en hún mun koma út þar í haust. Útgáfufélög víða um heim hafa nú bækurnar til skoðunar svo ljóst má vera að ferðalögum Maxa linnir lítt á næstunni. Er það ánægjulegt á þessum síðustu og verstu að gunnfáni íslenskrar útrásar er ekki fallinn heldur borinn uppi af mús sem þvælist inn á tónleikapalla.- pbb
Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira