Fótbolti

Byrjunarlið Englands - Defoe í liðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Defoe er í liðinu.
Defoe er í liðinu.

Emile Heskey er loksins kominn á bekkinn hjá enska landsliðinu og í framlínu enska liðsins er kominn Jermain Defoe.

Alls eru þrjár breytingar á enska liðinu en inn í liðið koma einnig James Milner og Matthew Upson.

Milner kemur í stað Aaron Lennon og Upson leysir Jamie Carragher af en hann er í leikbanni.

Byrjunarlið Englands: David James - Glen Johnson, John Terry, Matthew Upson, Ashley Cole - James Milner, Gareth Barry, Frank Lampard, Steven Gerrard - Wayne Rooney, Jermain Defoe.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×