Fótbolti

Domenech neitaði að taka í hönd Parreira

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Parreira og Domenech eftir leikinn í dag.
Parreira og Domenech eftir leikinn í dag. Nordic Photos / AFP

Raymond Domenech, landsliðsþjálfari Frakka, neitaði að taka í hönd Carlos Alberto Parreira, þjálfara Suður-Afríku, eftir leik liðanna á HM í dag.

Suður-Afríka vann leikinn, 2-1, og Frakkar féllu úr leik eftir að hafa fengið aðeins eitt stig í A-riðli.

Þeir áttu orðaskipti eftir leikinn og er talið að Domenech hafi mislíkað ummæli sem Parreira lét falla fyrir mótið. Þá sagði hann að Frakkar áttu ekki skilið að komast á HM.

Mikil dramatík hefur verið í kringum franska landsliðið en um helgina var Nicolas Anelka rekinn heim fyrir að rífast við Domenech.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×