Svona hljómaði brandari Eiðs Smára 5. maí 2010 08:00 Eiður Smári á forsíðu Daily Star. Hann var að segja brandara um Mexíkóa en ekki heilsa að hætti nasista. Frank Lampard hlustaði á gamanmál Eiðs en ekki er vitað hvort hann hafi hlegið.
Eiður Smári Guðjohnsen er heldur betur í kastljósi breskra fjölmiðla eftir að götublaðið Daily Star birti flennistóra mynd af honum á forsíðu blaðsins og frétt um að þarna hafi hann heilsað að hætti nasista. Málið þykir mikið hneyksli í Bretlandi. Eiður og fjölmiðlafulltrúi hans, Eggert Skúlason, hafa lýst því yfir að knattspyrnuhetjan hafi verið að segja brandara um Mexíkó. Fréttablaðið hefur komist á snoðir um hvernig brandarinn hljómar og er hann birtur hér á ensku með íslenskri þýingu fyrir aftan og útskýringum á látbragðinu: „I know some words in mexican,“ eða „Ég kann nokkur orð á mexíkósku.“ (áheyrendur spyrja hvaða orð það séu og brandarakarlinn setur tvo fingur yfir efri vörina á sér til að mynda yfirvaraskegg eins og erkitýpa Mexíkóa er hvað þekktust fyrir að bera og segir: „Hey Gringo, how much for your wife and children?“ sem myndi útleggjast „Heyrðu Gringo, hversu mikið fæ ég fyrir konuna þína og börnin?“ Brandarinn gengur semsagt út á það að sá sem segir brandarann kunni ekki stakt orð í mexíkósku heldur segi eftirfarandi orð á ensku. Rétt er að halda því til haga að opinbert tungumál í Mexíkó er spænska. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var það tilviljun ein að hönd Eiðs, sem í Daily Star er sögð hafa verið nasistakveðjan, sé í þeirri stöðu sem myndin sýnir. Hún tengist allavega ekkert brandaranum. Þá herma sömu heimildir að myndin sé tekin í gegnum glugga skemmtistaðarins á miðnætti, skömmu eftir að staðnum var lokað. Með Eiði í för var meðal annars enski landsliðsmaðurinn Frank Lampard en ekki er vitað hvort honum fannst brandarinn um Gringo fyndinn.- fgg
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira