Fótbolti

Stoichkov: Zlatan er flopp og endar hjá City

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Sðpyrnumaður góður, Hristo Stoichkov.
Sðpyrnumaður góður, Hristo Stoichkov. GettyImages
Hristo Stoichkov, goðsögn hjá Barcelona, segir að Zlatan Ibrahimovic hafi floppað algjörlega hjá félaginu. Stoichkov segir jafnframt að Zlatan muni "enda hjá Manchester City."

Stoichkov vann spænsku deildina fjórum sinnum með Barcelona á árunum 1991 til 1993 og Evróputitilsins 1992. Hann var hreinlega dýrkaður hjá klúbbnum.

Hann liggur heldur ekki á skoðunum sínum og segir Svíann ekki eiga heima hjá Barcelona.

"Dvöl hans hjá Barcelona var mikið flopp. Hann er góður leikmaður en er ekki fyrir Barcelona. Ég veðja á að hann endi hjá Manchester City," sagði Búlgarinn geðþekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×